Innlent

Nýr meirihluti þarf að sameina tvö sveitarfélög í eitt

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Bæjarfulltrúar meirihlutans undirrita málefnasamning. Frá vinstri: Katrín Pétursdóttir, Laufey Erlendsdóttir, Ólafur Þór Ólafsson, Einar Jón Pálsson, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir og Haraldur Helgason.
Bæjarfulltrúar meirihlutans undirrita málefnasamning. Frá vinstri: Katrín Pétursdóttir, Laufey Erlendsdóttir, Ólafur Þór Ólafsson, Einar Jón Pálsson, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir og Haraldur Helgason. Hilmar Bragi Bárðarson
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og óháðra og Jákvæðs samfélags hafa undirritað málefnasamning um meirihlutasamstarf í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðisbæjar. Nýr meirihluti á ærin verkefni fyrir höndum því auk þess að starfa saman í meirihluta þurfa flokkarnir að sameina tvö rótgróin sveitarfélög í eitt. 

Stóra verkefnið sem bíður nýrrar bæjarstjórnar er nýtt aðalskipulag sem mun þá ráða miklu um það hvernig bæjarfélagið byggist upp á næstu árum. Efst á blaði eru leikskólamál og að tengja byggðarkjarnana tvo betur saman.

Einar Jón Pálsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins og óháðra í Garði og Sandgerði, verður forseti bæjarstjórnar og Ólafur Þór Ólafsson, oddviti Jákvæðs samfélags í Garði og Sandgerði, verður formaður bæjarráðs.

Flokkarnir hafa ákveðið að staða bæjarstjóra verði auglýst og ráðið í hana út frá faglegum forsendum.

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi hefst miðvikudaginn 20. júní.

Flokkarnir í meirihluta eru tveir stærstu flokkarnir í Sandgerði og Garði en Sjálfstæðisflokkurinn og óháðir hlaut alls 34,54% atkvæða og fékk 3 menn kjörna. Jákvætt samfélag fékk 29,25% atkvæða og 3 menn kjörna, líkt og D-listi.

Það er kannski táknrænt fyrir sameiningu sveitarfélaganna að flokksleiðtogarnir tveir hafa aðsetur hvor í sínum bænum. Einar Jón Pálsson, oddviti sjálfstæðisflokksins og óháðra, býr í Garði og Ólafur, oddviti Jákvæðs samfélags, býr í Sandgerði.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×