Erlent

Evrópuríki deila vegna andstöðu Ítala við flóttamenn

Kjartan Kjartansson skrifar
Salvini leiðir Bandalagið, öfgahægriflokk sem er andsnúinn innflytjendum.
Salvini leiðir Bandalagið, öfgahægriflokk sem er andsnúinn innflytjendum. Vísir/EPA
Ítalska ríkisstjórnin situr fast við sinn keip og ætlar að neita björgunarskipum sem taka upp flótta- og farandfólk á Miðjarðarhafi um leyfi til að koma til hafnar. Franska ríkisstjórnin deilir hart á afstöðu Ítala og fullyrðir að þeim beri skylda til að taka við fólkinu samkvæmt alþjóðalögum.

Matteo Salvini, innanríkisráðherra Ítalíu og leiðtogi öfgahægriflokksins Bandalagsins, bannaði fransk-þýska björgunarskipinu Aquarius að koma til hafnar þar með á sjöunda hundrað farandfólks á sunnudag. Síðan þá hefur skipið haldið kyrru fyrir á Miðjarðarhafi á meðan Evrópuríki þræta um örlög fólksins.

„Við munum ekki breyta afstöðu okkar til skipa sem tilheyra félagasamtökum. Skip sem tilheyra erlendum stofnunum undir erlendum fánum geta ekki stýrt innflytjendastefnu Ítalíu,“ segir Salvini.

Spænska ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka við fólkinu og er byrjað að flytja það til hafnar í Valencia á austurströnd Spánar.

Frakkar og Ítalir skiptast á skotum

Þrátt fyrir að Spánverjar hafi haldið samskiptum sínum við Ítali á diplómatískum nótum vegna málsins hafa stjórnvöld í Frakklandi brugðist harðar við, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Emmanuel Macron forseti hefur fordæmt ákvörðun ríkisstjórnar Ítalíu um að banna björgunarskipinu að koma til hafnar.

„Það er viss hundingsháttur og ábyrgðarleysi í hegðun ítölsku ríkisstjórnarinnar varðandi þetta alvarlega mannúðarástand,“ segir talsmaður Macron að forsetinn hafi sagt við ríkisstjórn sína. Gabriel Attal, talsmaður flokks Macron, gekk enn lengra.

„Afstaða Ítala lætur mig gubba,“ sagði Attal.

Á móti sakaði Guiseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, frönsk stjórnvöld um hræsni. Þau hefðu alltaf kosið að snúa bakinu við innflytjendamálum. Utanríkisráðuneyti Ítalíu kallaði svo franska sendiherrann í Róm á teppið vegna ummæla Macron í dag.

Ítölsk stjórnvöld hafna því ennfremur að þau séu ómannúðlega eða haldin útlendingahatri. Vísa þau meðal annars til þess að skip ítölsku strandgæslunnar með rúmlega níu hundruð farandfólks um borð hafi komið til hafnar á Sikiley í dag.


Tengdar fréttir

Komast hvergi í land

629 flóttamönnum var bjargað á leið þeirra yfir miðjarðarhafið af skipinu Aquarius, skipið fær þó hvergi leyfi til að koma að landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×