Innlent

Ómerkt súlfít í Chlorella fæðubótarefni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti.
Varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti. Aðsent
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir súlfít við neyslu á chlorella-töflum. Töflurnar innihalda náttúrulegt súlfít sem er ofnæmis- og óþolsvaldur án þess að það komi fram á merkingum. Upplýsingar um vöruna bárust Matvælastofnun í gegnum RASFF viðvörunarkerfi Evrópu, Rapid Alert System for Food and Feed.

Fyrirtækið Aðföng sem dreifir töflunum hefur endurmerkt vöruna með orðunum „Varan inniheldur náttúrulegt súlfít“ í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Á innköllunin því við þær vörur sem neytendur eiga heima hjá sér og ekki er búið að endurmerkja.

Hráefnið sem notað er í Himneskt lífrænar chlorella-töflur inniheldur náttúrulegt súlfít og fer magnið yfir 10 mg/kg samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun. Súlfít í styrk yfir 10 mg/kg er skilgreint sem ofnæmis- eða óþolsvaldur.

Samkvæmt Matvælastofnun er varan skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir súlfíti eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Himneskt

Vöruheiti: Lífrænar Chlorella-töflur

Strikanúmer: 5690350052610

Nettómagn: 300 töflur/pakka

Best fyrir: Allar dagsetningar

Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík

Dreifing: Verslanir Bónus (Faxafeni, Hafnarfirði, Kópavogi, Fiskislóð, Langholti Akureyri, Naustahverfi Akureyri, Holtagörðum, Laugavegi, Smáratorgi, Njarðvík, Völlum, Ögurhvarfi, Kauptúni, Nýbýlavegi), og Hagkaupa (Skeifunni, Kringlunni, Spönginni).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×