Innlent

Saksóknari á von á því að bróðirinn verði ákærður fyrir manndráp

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi 31. mars síðastliðinn.
Frá vettvangi 31. mars síðastliðinn. Vísir/Magnús Hlynur
Héraðssaksóknari hefur fengið á sitt borð mál manns sem er grunaður um að hafa orðið bróður sínum að bana á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þann 31. mars síðastliðinn. Greint var fyrst frá því að málið væri komið inn á borð saksóknara á vef RÚV. 

Maðurinn hefur verið í gæsluvarðhaldi síðastliðnar vikur en 23. júní næstkomandi verða tólf vikur frá því maðurinn var úrskurðaður fyrst í gæsluvarðhald, en ekki má halda honum lengur án ákæru.

„Við höfum til þess dags til að gefa út ákæru,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari í samtali við Vísi.

Hún á von á því að ákæra verði gefin út í þessu máli.

„Það er allavega búið að ganga út frá því að það sé sterkur grunur um að hann hafi framið þetta brot og þess vegna reikna ég með því að það verði gefin út ákæra,“ segir Kolbrún.

Talið er að til átaka hafi komið á vettvangi, að því er komið hefur fram í skýrslu lögreglu. Lögregla byggir mat sitt m.a. á símtali mannsins, sem grunaður er, við Neyðarlínu þar sem hann lýsti því að til átaka hafi komið milli þeirra bræðra.

Þá kemur fram í handtökuskýrslu að lögregla hafi hitt manninn blóðugan fyrir í anddyri hússins þegar hún mætti á vettvang og gleraugu kærða lágu auk þess við fætur hins látna.


Tengdar fréttir

Ummerki um ítrekaðar barsmíðar

Sterkar líkur eru á að maðurinn sem fannst látinn á Gýgjarhóli II hafi orðið fyrir miklum barsmíðum sem hafi leitt til dauða hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×