Erlent

Norðurkóreskir miðlar segja að þvingunum verði aflétt

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Fjölmiðlar í heimalandinu eru hoppandi kátir með sinn mann.
Fjölmiðlar í heimalandinu eru hoppandi kátir með sinn mann. Rodong Sinmun
Rodong Sinmun, ríkisdagblað Norður-Kóreu, fjallaði í gær ítarlega um leiðtogafund Donalds Trump Bandaríkjaforseta og einræðisherrans Kim Jong-un sem fram fór í Singapúr degi fyrr. Umfjöllunin var löng og vel myndskreytt. „Kim Jong-un lét þau merkingarþrungnu ummæli falla að fortíðin héldi fast um ökkla þeirra, fordómar héldu fyrir augu þeirra og eyru. En að þeir hefðu yfirstigið allar þessar hindranir og komið til Singapúr til að byrja upp á nýtt,“ sagði meðal annars í umfjölluninni, sem einnig birtist á vefsíðu ríkissjónvarpsins, KCNA.

Miðillinn sagði viðræðurnar hafa verið góðar. Leiðtogarnir hafi komið saman til að stíga fyrsta skrefið í átt að friði eftir um sjö áratuga illdeilur. Kim hafi svo tekið ljósmynd með Trump en samni n g a n e f n d i r ríkjanna hafi orðið eftir í Singapúr til að eiga í enn frekari viðræðum. „Hann sagðist vera ánægður að setjast niður með Trump forseta og bandarísku sendinefndinni. K i m Jo n g - u n hrósaði forsetanum í hástert fyrir vilja sinn og áhuga á því að leysa deiluna á raunhæfan hátt með viðræðum og samningum,“ sagði í Rodong Sinmun.

Sjá einnig: Yfirlýsing Kim og Trump sögð innihaldsrýr en lofa miklu

Efnislega var umfjöllunin nokkuð í takt við það sem birst hafði í miðlum víðs vegar um heim, þótt hún hafi reyndar verið hástemmdari og laus við alla gagnrýni á einræðisherrann. Hins vegar kom eftirfarandi efnisgrein nokkuð á óvart: „Trump tjáði þá ætlun sína að hætta heræfingum með SuðurKóreu, sem Lýðræðislega alþýðulýðveldið Kórea [Norður-Kórea] álítur ögrun, með tíð og tíma á meðan ríkin ræða saman, sem og að tryggja öryggi alþýðulýðveldisins og að aflétta viðskiptaþvingunum gegn því.“ Ekki var á neinn hátt kveðið á um viðskiptaþvinganir í plagginu sem Trump og Kim undirrituðu.

Segir framtíðarhorfurnar góðar

Á blaðamannafundi eftir leiðtogafundinn sagði Trump þó að á meðan unnið yrði að kjarnorkuafvopnun myndi þvingunum ekki verða aflétt. Ljóst er að sú vinna mun taka langan tíma og ekki er enn öruggt að Norður-Kórea muni losa sig við kjarnorkusprengjur sínar.

Orð Norður-Kóreumanna nú eru því í ákveðinni mótsögn við það sem Bandaríkjaforseti sagði, þar sem þvinganirnar eru, að sögn Trumps, ekki á útleið í náinni framtíð. Við heimkomuna til Bandaríkjanna í gær opnaði Trump Twitter og sagði alla hafa gert ráð fyrir því að stríð við Norður-Kóreu væri í vændum áður en hann tók við embættinu.

Barack Obama, fyrirrennari hans, hafi sagt, að Norður-Kórea væri stærsta og hættulegasta vandamálið.

„ Ekki lengur, sofið rótt í nótt,“ tísti Trump. Forsetinn sagði jafnframt að öllum ætti að finnast þeir vera öruggari nú en þegar hann tók fyrst við völdum. „Nú stafar engin kjarnorkuógn af Norður-Kóreu . Fundurinn með Kim Jong-un var áhugaverður og jákvæð lífsreynsla. Framtíðarhorfur Norður-Kóreu eru góðar!“


Tengdar fréttir

Allir hrósa sigri eftir fund aldarinnar

Kim Jong-un getur fagnað eftir fund sinn með Trump. Kínverjar fagna því að hugmyndum þeirra verði mögulega fylgt eftir en Íranar vara við sviksemi Donalds Trump.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×