Innlent

Víða snjóaði á fjallvegum í nótt

Gissur Sigurðsson skrifar
Norðan og norðaustanátt spáð á landinu í dag.
Norðan og norðaustanátt spáð á landinu í dag. Vísir/Anton Brink
Það snjóaði víða á fjallvegum norðaustanlands í nótt, sem glöggt má sjá á vefmyndavélum Vegagerðarinnar. Sjálfsagt hefur víða myndast hálka, en að sögn veðurfræðings er snjórinn hvergi meiri en svo að hann bráðni ekki um leið og sól fer að skína.

Annars er spáð norðan og norðaustanátt á landinu í dag , þurrt vestanlands en annars skúrir og jafnvel slydduél fyrir norðan. Hiti verður 3 til 13 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verða norðan fimm til tíu metrar á sekúndu og hiti 6 til 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×