Golf

Örn á frábærum lokaspretti bjargaði Ólafíu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafía Þórunn spilaði stöðugt golf í dag eftir erfiða byrjun.
Ólafía Þórunn spilaði stöðugt golf í dag eftir erfiða byrjun. vísir/getty
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að öllum líkindum komin í gegnum niðurskurðinn á Mejer Classic mótinu í golfi sem er hluti af LPGA mótaröðinni.

Ólafía átti góðan fyrsta hring í gær þar sem hún endaði á erni og kláraði á þremur höggum undir pari.

Morguninn byrjaði hins vegar heldur betur illa hjá íþróttamanni ársins 2017 og fékk hún tvo skolla í röð á annari og þriðju holu. Hún fékk svo þriðja skollann á sjöundu holunni og var komin á parið og fyrir neðan niðurskurðarlínuna.

Þá tók við hrikalega stöðugt golf. Hún gerði í raun allt nákvæmlega eftir bókinni, hitti flestar brautir og flatir og var að tvípútta fyrir pörum. Átta pör í röð á 8. - 15. braut.

Á 16. brautinni gerði Ólafía sér lítið fyrir og setti örn og fylgdi því eftir með fugli á 18. holu. Fór því hringinn í dag á pari og lauk keppni á þremur höggum undir pari.

Þegar Ólafía kom í hús var hún í 42. - 56. sæti og niðurskurðarlínan við tvö högg undir parið. Hún var hins vegar með fyrstu kylfingum út á völlinn í morgun og því mikið vatn eftir að renna til sjávar.

Fuglinn á 18. holunni ætti að hafa tryggt Ólafíu í gegnum niðurskurðinn en það mun þó ekki koma í ljós fyrr en í lok dags hver lokastaðan verður.

Bein útsending frá mótinu verður á Stöð 2 Sport 4 frá klukkan 17:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×