Næststærsta skráning í sögu Kauphallar Íslands Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. júní 2018 11:44 Bjallan var flutt úr Kauphöllinni á Laugavegi niður í Arion banka í Borgartúni þar sem Höskuldur Ólafsson bankastjóri hringdi inn viðskipti með hlutabréf bankans samtímis í Kauphöllunum í Reykjavík og Stokkhólmi.
Hlutabréf Arion banka voru tekin til viðskipta samtímis í kauphöllunum á Reykjavík og Stokkhólmi í morgun. Skráning Arion banka er næststærsta skráning í sögu Kauphallar Íslands og fyrsta samhliða tvískráning á mörkuðum Nasdaq á Norðurlöndunum í meira en áratug. Mikil umframeftirspurn var í hlutafjárútboðinu. Grunnstærð þess var að lágmarki 452,5 milljónir hluta en seljendur bréfanna voru Kaupskil, dótturfélag Kaupþings og félagið Trinity Investments.Gengið í útboðinu voru 68-79 krónur fyrir hvern hlut. Um sjötíu prósent af eftirspurninni kom frá útlöndum sem þýðir að mikið af erlendum fjárfestum koma nú inn í hluthafahóp Arion banka. „Ég held að það sé bara jákvætt fyrir bankann að draga að fjölbreyttari flóru fjárfesta en við þekkjum hér. Við höfum líka horft til þess að það geti verið mjög jákvætt fyrir umhverfið. Þegar það koma svona margir erlendir inn í fjárfestamengið hér þá verður meiri áhugi á öðru sem er að gerast hér og við bindum vonir við að það geti falist dýnamík fyrir atvinnulífið og kauphöllina í þessari frábærlega vel heppnuðu skráningu Arion banka,“ segir Höskuldur Ólafsson bankastjóri Arion banka. Áskriftir sem sem standa undir 70 prósentum þess hlutafjár sem var í boði komu frá útlöndum eins og áður segir. Höskuldur segir að eftirspurnin sé mjög dreifð. Margir fjárfestanna komi frá Bandaríkjunum en einnig sé talsvert um skráningar frá hinum Norðurlöndunum.
Mest lesið Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Viðskipti innlent Bein útsending: Má þetta bara? Viðskipti innlent Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Viðskipti innlent Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga Viðskipti innlent KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Viðskipti innlent Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Viðskipti innlent Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Viðskipti innlent „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Atvinnulíf Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Samstarf 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Bein útsending: Má þetta bara? Engin löndun í bili í Grindavík Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Kvika tók kipp Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Forstjóraskipti hjá Play Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálakerfið standi traustum fótum Sjá meira