Lífið

Kynlífsbann hjá Þjóðverjum en Svíar opna dyrnar fyrir frúnum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hinn þýski Mats Hummels fær hér koss frá konu sinni Cathy Fischer eftir leik Ítalíu og Þýskalands á EM 2016.
Hinn þýski Mats Hummels fær hér koss frá konu sinni Cathy Fischer eftir leik Ítalíu og Þýskalands á EM 2016. vísir/getty
Ríkjandi heimsmeistarar Þjóðverja í knattspyrnu karla þurfa að fylgja ýmsum reglum á heimsmeistaramótinu í Rússlandi, eins og þeir reyndar þurftu að gera fyrir fjórum árum í Brasilíu.

Þá eins og nú voru heimsóknir eiginkvenna og kærasta leikmanna bannaðar á meðan á mótinu stendur auk þess sem þýsku leikmennirnir mega ekki nota samfélagsmiðla. Svíarnir eru ekki alveg jafn strangir.

„Við höfum aldrei bannað kynlíf,“ segir Lasse Richt, landsliðsþjálfari Svíþjóðar, en fjallað er um málið ávef norska miðilsins VG.

Svíar opna dyrnar fyrir konum og kærustum á mánudag eftir fyrsta leikinn sem verður á mánudag en eins og greint hefur verið frá í íslenskum miðlum gilda svipaðar reglur um íslenska landsliðið og það þýska.

Konur og kærustur landsliðsmannanna fá ekkert að hitta þá á HM en strákarnir okkar mega þó nota samfélagsmiðla, öfugt við þá þýsku. Á EM 2016 fengu íslensku strákarnir að hitta maka sína einu sinni.

En þó að Joachim Löw, þýski landsliðsþjálfarinn, sé strangur þegar kemur að heimsóknum kvenna og samfélagsmiðlum er hann ekki jafn strangur þegar kemur að áfenginu þar sem hann leyfir bæði bjór og vín á hótelinu þar sem leikmennirnir dvelja. Ekkert áfengi er hins vegar í íslensku herbúðunum og það er líka áfengisbann hjá Svíunum.


Tengdar fréttir

Ætlum upp úr riðlinum eins og þeir!

Mikill fjöldi ástvina og aðstandenda landsliðsmanna er á leið til Rússlands. Þeirra á meðal eru kærustur og eiginkonur leikmannanna. Sex þeirra hittu blaðamann yfir kaffibolla og ræddu væntingar fyrir HM.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×