Innlent

Brot ökumanna ekki verið fleiri

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umferðarlögreglan.
Umferðarlögreglan. Fréttablaðið/Ernir
Skráðum umferðarlagabrotum í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði umtalsvert í maí. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði sem send var fjölmiðlum í gær. Skráð voru 3.856 umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu og hafa ekki verið skráð jafn mörg brot í einum mánuði frá því að samræmdar skráningar hófust hjá lögreglu árið 1999. Stærstur hluti þessara mála er vegna of hraðs aksturs, eða tæplega 3.000 brot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×