Fótbolti

Sjáðu hvernig strákarnir okkar og „bláa hafið“ fögnuðu saman eftir leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska landsliðið náði 1-1 jafntefli á móti stórliði Argentínu í fyrsta leik sínum á HM í Rússlandi þar sem allir stóðu sig frábærlega, bæði leikmennirnir inn á vellinum sem og íslenska stuðningsfólkið í stúkunni.

Strákarnir okkar eru miklir keppnismenn og vildu fá öll þrjú stigin en jafntefli á móti fyrrum heimsmeisturum Argentínu eru frábær úrslit fyrir lið í sínum fyrtsa leik frá upphafi í úrslitakeppni HM.

Alfreð Finnbogason jafnaði metin í fyrri hálfleik og Hannes Þór Halldórsson tryggði stigið með því að verja víti frá Lionel Messi í seinni hálfleiknum.

Það var mikil stemning á Spartak vellinum í Moskvu og íslenska stuðningsfólkið átti mikinn þátt í því. Íslendingarnir fögnuðu líka frábærum úrslitum eftir leik og Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á vellinum og tók þessar flottu myndir hér fyrir neðan.

Íslensku strákarnir hoppuðu upp í stúku eftir leik eins og sjá má hér. Aron Einar Gunnarsson og Ragnar Sigurðsson er þarna komnir inn í hóp íslenska stuðningsfólksins. Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×