Golf

Rússíbanareið á þriðja hring Ólafíu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að spila þokkalega í Michigan
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er að spila þokkalega í Michigan vísir/Getty
Þriðji hringur Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur á Meijer Classic mótinu í golfi var mikil rússíbanareið en hún fékk sex fugla í dag.

Ólafía komst í gegnum niðurskurðinn eftir glæsilegan endasprett í gær þar sem hún fékk örn og fugl á síðustu þremur holunum og var á þremur höggum undir pari þegar hún kom í hús.

Í dag byrjaði Ólafía á fugli strax á fyrstu holu. Hún fékk svo fimm pör í röð áður en tveir fuglar bættust í hópin og íþróttamaður ársins 2017 komin í frábæra stöðu á sex höggum undir pari.

Þá fór hins vegar að halla undan fæti og komu fjórir skollar á næstu fimm holum.

Endaspretturinn bjargaði hins vegar deginum, fuglar á 15., 16. og 18. braut sáu til þess að hún endaði daginn á tveimur höggum undir pari og samtals á fimm höggum undir pari.

Ólafía var með þeim fyrstu til að fara út á völlinn í dag og er sem stendur þegar þessi frétt er skrifuð jöfn í 49. - 61. sæti.

Bein útsending frá mótinu hefst klukkan 17:30 á Stöð 2 Sport 4 en mikil spenna er í toppbaráttunni þar sem aðeins tvö högg skilja á milli efstu fimm kylfinganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×