Erlent

Sautján ungmenni létust í troðningi á skemmtistað

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Néstor Reverol, innanríkisráðherra Venesúela.
Néstor Reverol, innanríkisráðherra Venesúela. Vísir/AFP
Minnst sautján eru látnir eftir að hafa troðist undir í mikilli mannþröng á skemmtistað í Caracas, höfuðborg Venesúela.

Innanríkisráðherra landsins, Néstor Reverol, staðfesti tölu látinna í dag en upptök atviksins eru rakin til táragassprengju sem sprengd var í kjölfar ryskinga milli manna á staðnum.

Flestir á skemmtistaðnum, Club Los Cotorros, voru þar staddir til að fagna skólaslitum og eru flestir hinna látnu taldir vera á aldrinum 16-20 ára.

Á meðal þeirra sem eru í haldi lögreglu vegna málsins er eigandi skemmtistaðarins auk tveggja manna undir lögaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×