Fótbolti

„Snillingurinn“ sem þjálfar Argentínu kom þjálfarateyminu ekkert á óvart

Tómas Þór Þórðarson í Kabardinka skrifar
Jorge Sampaoli kolféll á prófinu gegn Íslandi í gær.
Jorge Sampaoli kolféll á prófinu gegn Íslandi í gær. vísir/getty
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að íslenska landsliðið í fótbolta gerði 1-1 jafntefli við Argentínu á HM 2018 í fótbolta í gær.

Leikurinn var nánast fullkomlega spilaður hjá okkar mönnum en leikskipulagið var frábært og framkvæmdin hjá strákunum í hæsta gæðaflokki. Argentínumenn komust lítt á leiðis gegn íslenska varnarmúrnum.

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, er yfirnjósnari íslenska liðsins og hann sat upp í stúku og hjálpaði til við að leikgreina leikinn í beinni. Hann kom svo skilaboðum áleiðis niður á bekkinn.

Freyr Alexandersson er yfirnjósnari íslenska liðsins.vísir/getty

Biðu eftir því óvænta

Jorge Sampaoli, þjálfari Argentínu, þykir mikið séní þegar kemur að leikskipulagi og leikfræði og því óttaðist íslenska þjálfarateymið að hann myndi finna upp hjóli á Spartak-vellinum í gær en svo var nú aldeilis ekki. Argentínumaðurinn féll á prófinu.

„Leikurinn spilaðist eins og við bjuggumst við. Það var ekkert sem að kom okkur á óvart. Við Heimir vorum alltaf að bíða eftir þessu óvænta því það er alltaf talað um hvað Sampaoli sé mikill snillingur,“ segir Freyr en hann tók virkan þátt í æfingu íslenska landsliðsins í Kabardinka í dag.

„Ég held að þetta snúist frekar um hvað hann getur verið óútreiknanlegur. Það bara kom ekki neitt,“ segir hann.

Lionel Messi kom boltanum ekki í netið í gær þrátt fyrir að skjóta ellefu sinnum að marki. Íslensku strákarnir voru búnir að undirbúa sig vel fyrir að mæta einum besta leikmanni sögunnar og það skilaði sér.

Lionel Messi var í gjörgæslu.vísir/getty

Mest bara hissa

„Við vorum búnir að fara vel yfir það, að Messi má aldrei fá yfir tíu metra á milli varnar og miðju og hvernig varnarlínan okkar og miðlínan unnu saman að því að loka því svæði var stórkostlegt. Svo var Heimir búinn að fara einstaklega vel yfir það hvernig menn eiga að standa á Messi. Það var meiriháttar að horfa á þetta,“ segir Freyr.

Það þótti ákveðin vanvirðing og vanmat þegar að Sampaoli las upp byrjunarlið argentínska liðsins á blaðamannafundi degi fyrir leik og gaf þannig Heimi og hans mönnum meiri tíma til að undirbúa sig.

„Ég var bara hissa. Ég vissi ekki hvort ég átti að túlka þetta sem hroka eða sjálfstraust hjá þeim. Þetta eru ekki vanaleg vinnubrögð. Ég athugaði það. Við vorum aðallega hissa en við vorum aftur á móti búnir að giska á þetta byrjunarlið þannig að þetta kom okkur ekki á óvart heldur skapaði okkur bara frekara svigrúm til að slaka á og vinna í öðrum hlutum,“ segir Freyr Alexandersson.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×