Innlent

Eigandi þriggja kílóa af kókaíni ófundinn

Sveinn Arnarsson skrifar
Allir skipverjar hafa enn réttarstöðu sakbornings.
Allir skipverjar hafa enn réttarstöðu sakbornings. Vísir/VIlhelm
Þriggja kílóa kókaínsmygl í Skógafossi í lok júní fyrir þremur árum er enn óupplýst hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Enn liggja allir skipverjar Skógafoss undir grun og hafa réttarstöðu sakbornings.

Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir málið enn til rannsóknar og að lögreglan hafi ekki gefið rannsóknina upp á bátinn þó að henni hafi ekkert miðað áfram. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fundust efnin í bakpoka í gámi í skipinu sem notaður er af áhöfninni. Starfsmaður Tollstjóra á að hafa fundið efnin og byrjað að spyrjast fyrir um í skipinu hver ætti téðan bakpoka.

Tollvörðurinn fór því samkvæmt þessu ekki eftir settum verklagsreglum en þegar efni sem þessi finnast á að kalla lögreglu til og tryggja vettvang svo að rannsóknarhagsmunir spillist ekki. Í þessu tilfelli var það ekki gert og skipverjum gert kunnugt að efni hefðu fundist í skipinu.

Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónnStöð 2
Lögreglan sendi rannsóknargögn til Svíþjóðar til frekari greiningar sumarið 2016. Sú rannsókn hefur hingað til ekki skilað neinum árangri.

„Við erum með málið opið og erum ekki búnir að leggja það upp. Við erum ekki að gefast alveg upp. Ég er ekki með það á hreinu hversu margir hafa verið yfirheyrðir eða hvað það er búið að tala við marga,“ segir Margeir. 

„Málið er enn á sama stað og árið 2016. Við erum bara að reyna að sjá hvort við fáum eitthvað inn sem gæti leitt okkur á sporið. Við ljúkum ekki svona málum einn, tveir og þrír,“ bætir Margeir við.

Götuvirði efnanna er í kringum eitt hundrað milljónir króna. Styrkleiki efna á götunni er oft mun minni en þeirra sem finnast í innflutningi og er virði efnanna oft margfaldað með því að drýgja þau. Á meðan málið er enn opið til rannsóknar eru allir skipverjar, hvort sem þeir voru í umræddri ferð eða voru í landi í fríi, grunaðir í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×