Fótbolti

Neymar hvergi sjáanlegur á æfingu Brasilíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Neymar liggur óvígur eftir í leiknum á sunnudag. Sviss tók vel á móti Neymar.
Neymar liggur óvígur eftir í leiknum á sunnudag. Sviss tók vel á móti Neymar. vísir/getty
Dýrasti leikmaður heims, Neymar, tók ekki þátt í æfingu Brasilíu í gær, daginn eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Sviss í fyrsta leiknum á HM.

Jafnteflið gegn Sviss voru mikil vonbrigði fyrir Brasilíu en eftir að hafa komist yfir fengu þeir á sig jöfnunarmark og svekkjand jafntefli niðurstaðan.

Neymar, sem hafði verið lengi meiddur í aðdraganda mótsins, spilaði allan leikinn á sunnudaginn en var fjarverandi er liðið æfði daginn eftir leikinn í gær.

Neymar, Paulinho og Thiago Silva urðu eftir á hóteli liðsins og tóku á því í ræktinni frekar en á fótboltavellinum. Þeir eru allir sagðir hafa verið nokkuð lemstraðir eftir leikinn á sunnudagskvöldið.

Það var ljóst að svissnesku leikmennirnir ætluðu að taka vel á Neymar því þeir brutu á honum tíu sinnum í leiknum, nokkrum sinnum ákaflega illa.

Næst mætir Brasilía liði Kosta Ríka svo það er spurning hvort Neymar verði klár á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×