Lífið

Ekkert pláss fyrir einelti í þessum heimi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hin 14 ára Millie Bobby Brown hætti sjálf á Twitter vegna neteineltis.
Hin 14 ára Millie Bobby Brown hætti sjálf á Twitter vegna neteineltis. Skjáskot/MTV
Leikkonan Millie Bobbie Brown hlaut verðlaun á MTV Movie & TV Awards hátíðinni í gær, fyrir besta leik í sjónvarpsþætti. Túlkun hennar á Eleven í Stranger Things hefur opnað margar dyr fyrir þessa ungu og hæfileikaríku leikkonu en hún hefur einnig upplifað neikvæðar hliðar þess að vera fræg. Í ræðu sinni í gær talaði Brown meðal annars um einelti, en eins og við sögðum frá á dögunum þurfti hún að hætta á Twitter vegna neteineltis.

Brown var ekki viðstödd á hátíðinni þar sem hún er heima að læknisráði að jafna sig eftir meiðsli. Þakkarræða hennar var því spiluð á stórum skjá. Í ræðu sinni þakkaði hún Netflix, framleiðendum, leikurum og öðru starfsfólki í kringum Stranger Things þættina. Hún þakkaði líka aðdáendum sínum sérstaklega fyrir stuðninginn.

„Það er ekkert leyndarmál að það að landa hlutverki Eleven í Stranger Things hefur breytt lífi mínu á ótrúlegan hátt. Það hefur gefið mér tækifæri til þess að vinna með stórkostlegu fólki.“

Hún nýtti líka tækifærið og beindi orðum sínum að ungum áhorfendum en sjálf er hún aðeins 14 ára gömul.

„Ég veit að það er mikið af ungu fólki að horfa, og þeir fullorðnu líka sem þurfa sennilega á áminningunni að halda, að mér var kennt að ef þú hefur ekkert gott að segja, segðu það þá ekki.“

Brown sagði að í þessum heimi ætti ekki að vera neitt pláss fyrir einelti.

„Ég ætla ekki að leyfa það og það ætti enginn ykkar að gera. Ef þú þarft áminningu um það hvers mikils virði þú ert eða til þess að rísa ofar hatrinu, sendu mér skilaboð á Instagram.“

Brown neyddist til þess að eyða sínum eigin Twitter-reikningi vegna þess að einhverjir netverjar tóku hana fyrir og lögðu hana í einelti. Nettröll bjuggu til myllumerkið „Tökum niður Millie Bobby Brown“ eða #TakeDownMillieBobbyBrown á síðasta ári með þessum afleiðingum.

Umfjöllun okkar um alla vinningshafa kvöldsins má finna hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×