Lífið

Á bak við tjöldin hjá landsliðinu með Þorgrími Þráins

Kolbeinn Tumi Daðason í Kabardinka skrifar
Ég fékk ekki leyfi hjá Rurik Gislason til að birta þessa mynd en í ljósi 500.000 fylgjenda hans á Instagram hefði hann krafist þess. Margar vildu þær vera í sporum Stebba sjúkra, segir Þorgrímur við eina af fjölmörgum skemmtilegum myndum sínum.
Ég fékk ekki leyfi hjá Rurik Gislason til að birta þessa mynd en í ljósi 500.000 fylgjenda hans á Instagram hefði hann krafist þess. Margar vildu þær vera í sporum Stebba sjúkra, segir Þorgrímur við eina af fjölmörgum skemmtilegum myndum sínum. Þorgrímur Þráinsson
Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, er einn af mönnunum á bak við tjöldin hjá karlalandsliði Íslands. Hann hefur í mörg ár ferðast með landsliðinu hvert sem það fer og verið strákunum stoð og stytta.

Þorgrímur, sem spilaði lengi með Val og er Valsari í húð og hár, gaf á dögunum út bók þar sem hann leyfði lesendum að kíkja í heimsókn á bak við tjöldin. Vísir fjallaði um valda hluti úr bókinni, meðal annars setningu Lars Lagerbäck sem Kári Árnason segir mikilvægasta framlag til íslensks fótbolta og snýr að því að tapa ekki stöðunni einn gegn einum.

Landsliðið dvelur á fimm stjörnu hóteli hér í Kabardinka við Svartahaf. Þar eyða þeir löngum stundum saman á milli æfinga og er Þorgrímur stundum með símann á lofti og tekur myndir. Myndirnar veita innsýn í daglegt amstur strákanna en fjölmiðlum er bannaður aðgangur að hótelinu sem öryggisverðir með vélbyssur gæta.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr smiðju Þorgríms sem hafa vakið mikla athygli á Facebook.


Einbeittir á leið í leikinn gegn Argentínu.Þorgrímur Þráinsson
Valsarar fyrir framan rauðu og hvítu stúkuna á Spartak-leikvanginum. Birkir Már er þessa stundina á mála hjá Val.Þorgrímur Þráinsson
Aron Einar, Raggi Sig, Hannes Þór og Ari Freyr með skemmtikraftinn Ólaf Inga Skúlason í fanginu.Þorgrímur Þráinsson
Það eru fleiri knattspyrnukempur á hóteli strákanna því þessi öryggisvörður sýndi Þorgrími myndband af sér skora mark í innanhússfótbolta.Þorgrímur Þráinsson
Kiddi Jó búningastjóri með nokkra af fleiri hundruð kössum sem bornir voru inn á hótelið.Þorgrímur Þráinsson
Þessi bryggja við Svartahaf er heppileg fyrir framstig og harðsperrur að sögn Þorgríms.Þorgrímur Þráinsson

Tengdar fréttir

Aron Einar grét fyrir stóru stundina

Ég tók smá stund fyrir sjálfan mig fyrir leik, þurrkaði tárin og drullaði mér svo út á völl, segir landsliðsfyrirliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×