Fótbolti

Birkir Már: Hlýt að hafa gert eitthvað rétt fyrst di Maria var tekinn út af

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Birkir Már í leikslok á laugardag
Birkir Már í leikslok á laugardag vísir/vilhelm
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur undanfarin ár verið þekkt fyrir skipulagðan og góðan varnarleik. Í síðustu leikjum fyrir HM fékk liðið hins vegar á sig óvenju mörg mörk en varnarleikurinn var aftur kominn í topp stand í fyrsta leiknum á HM, gegn Argentínu á laugardag.

Miðvörðurinn Kári Árnason var ánægður með varnarleik íslenska liðsins gegn Argentínu og á von á meira af því sama gegn Nígeríu.

„Hraði og gríðarlegur líkamlegur styrkur,“ eru helstu ógnir Nígeríumanna að mati Kára, en hann ræddi undirbúninginn fyrir næsta leik við Arnar Björnsson á æfingasvæði landsliðsins í Rússlandi.

„Við erum að fara yfir þetta í rólegheitunum og sjá hvernig við eigum að verjast og hvað við getum gert til þess að meiða þá.“

Félagi Kára í vörninni, Birkir Már Sævarsson, sem spilar með Val í Pepsi deildinni, fékk það verkefni að kljást við Angel di Maria í leiknum á laugardag.

Di Maria var tekinn frekar snemma af velli og sagði Birkir það hljóta að þýða að hann hafi gert eitthvað rétt.

„Þetta gefur manni smá viðurkenningu þegar kantmaðurinn manns er tekinn út af og hálftími eftir,“ sagði Birkir.

Ísland mætir Nígeríu í Volgograd klukkan 15:00 að íslenskum tíma á föstudaginn, 22. júní.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×