Tónlist

SURA frumsýnir nýtt myndband á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þura Stína er glæsileg í myndbandinu.
Þura Stína er glæsileg í myndbandinu.
„Ég samdi textann við lagið um leið og ég heyrði það. Var varla búin að fá það í hendurnar,“ segir tónlistarkonan Þura Stína sem gefur frá sér nýtt lag og myndband í samstarfi við Whyrun í dag. Listamannsnafn hennar er SURA og ber lagið nafnið Alltaf strax.

„Þetta small bara strax og ég hafði samband við Ými og fékk lagið hjá honum. Það er ótrúlega fyndið hvað þetta einhvern veginn small bara strax. Vinnslan við myndbandið og síðan eftirvinnslan tóku svolítið á en ég er ótrúlega ánægð með útkomuna og útgáfuna. Ég er búin að vera í mjög miklu sumarskapi í allri rigningunni við lokaferlið á laginu,“ segir Þura en Whyrun er einmitt framleiðandinn Ýmir Rúnarsson.

Þura segir að sagan á bakvið myndbandið taki mið af textanum í laginu en hér að neðan má lesa viðlagið:

Hringi og bið þig að koma

Þú kemur alltaf strax

Segi þér síðan að fara

Nenni ekki meir í dag

Þú hringir, á ég að koma?

Kem ekki alltaf strax

Er orðin leið á að svara

Sendu mér bara snapp

„Myndbandið var unnið af leikstjóranum Álfheiði Mörtu og heimurinn í því var unninn af okkur saman. Öll smáatriði og konsept voru líka í höndum förðunarfræðingsins Helgu Sæunnar Þorkelsdóttur, stílistans Díönu Rós Breckmann og proppsarans Ólöf Rut Stefánsdóttir. Það var hugsað þvílíkt vel út í alla ramma og allt skipti máli sem skilar sér í heildarmyndinni.“

SURA kemur fram á Secret Solstice í sumar.

„Þar verður allt efnið mitt spilað í fyrsta skipti, svo eru fleiri stærri verkefni bókuð í sumar sem á eftir að tilkynna. Með haustinu kemur svo platan mín út og Iceland Airwaves er svo einnig í haust.“

Hér að neðan má sjá nýja myndbandið með Þuru Stínu við lagið Alltaf strax.


Tengdar fréttir

Frelsandi að gefa út efni ein

Tónlistarkonan SURA hefur komið víða við en gefur í dag út lag í fyrsta skipti ein síns liðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×