Viðskipti innlent

Hægt að gæða sér á nokkrum réttum án þess að „ganga út með tóma budduna“

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Grandi mathöll verður opnuð fyrir gestum og gangandi klukkan 18 í dag.
Grandi mathöll verður opnuð fyrir gestum og gangandi klukkan 18 í dag. Vísir/Vilhelm
Grandi mathöll verður opnuð fyrir gestum og gangandi klukkan 18 í dag og bætist við þegar fjölskrúðuga flóru veitingastaða á hafnarsvæðinu úti á Granda. Mathöllin hefur talsverða sérstöðu meðal annarra veitingahúsa því hún stílar einkum inn á svokallað götufæði (e. streetfood). Mathöllin stendur við Grandagarð 16.

Það var mikil spenna og eftirvænting í loftinu þegar blaðamaður náði tali af Franz Gunnarssyni, viðburða-og markaðsstjóra Granda mathallar.

„Það er bara verið að snurfusa síðustu atriðin; gera allt spikk og span.“

Það er allt að verða klárt fyrir opnun mathallarinnar á Granda.vísir/vilhelm
Fyrir þá sem ekki vita, hvað er götufæði?

„Í grunninn er „Streetfood“ frumkvöðlastarf. Það er mikið til unnið af einyrkjum eða fjölskyldum sem vinna matinn sjálf, matreiða og standa vaktina. Það eru ekki stórfyrirtæki sem eru á bak við þetta heldur fólkið sjálft sem er að gera þetta. Skammtarnir eru minni, þú ert ekki að fá fulla máltíð og því er þetta ódýrara. Í grunninn voru það Forngrikkir sem steiktu fisk ofan í fátæka fólkið, þannig að þar byrjar þetta,“ segir Franz til útskýringar. Það sé hægt að gæða sér á tveimur til þremur mismunandi réttum án þess að „ganga út með tóma budduna.“

Hann segir að eigendur hafi lagt upp með að hafa eitthvað í boði fyrir alla og að kynna gesti mathallarinnar fyrir alþjóðlegum réttum. Til dæmis verður boðið upp á víetnamskan og kóreskan götubita.

„Svo erum við líka með lítinn grænmetismarkað og grænmetisstað. Síðan, til þess að lyfta sér upp, erum við með Micro Roast - Vínbar.“

Hefur ekki skapast heilmikið líf upp á síðkastið úti á Granda?

„Já, Þetta er bara partur af þessari uppbyggingu sem hefur átt sér stað og mun halda áfram að eiga sér stað úti á Granda,“ segir Franz sem segir marga bíða opnunarinnar með mikilli eftirvæntingu. Fólk hafi að undanförnu verið að gægjast inn um gluggana.

Mathöllin á Granda leggur áherslu á svokallað götufæði.vísir/vilhelm
Það er hægt að kaupa náttúruvín á Micro Roast - vínbar frá sérvöldum svæðum.Vísir/vilhelm
Heilmikil uppbygging hefur átt sér stað á hafnarsvæðinu. Grandi Mathöll stendur við Grandagarð 16.vísir/vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×