Fótbolti

UEFA gæti bannað AC Milan þáttöku í Evrópudeildinni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gennaro Gattuso og leikmenn hans.
Gennaro Gattuso og leikmenn hans. Vísir/Getty
UEFA gæti dæmt AC Milan úr keppni í Evrópudeildinni á næsta tímabili vegna brota á reglum um sanngjarna fjármálastarfssemi.

New York Times greindi frá því að rannsókn á fjármálum hins sögufræga ítalska félags hafi leitt í ljós að staða félagsins er ekki í samræmi við viðmiðunarreglur sambandsins. Nefndir innan UEFA munu funda um málið og komast að niðurstöðu um það hvort banna eigi AC Milan þáttöku í Evrópudeildinni.

Vandræðagangur liðsins á rætur að rekja til þess þegar fyrrum forsætisráðherran Silvio Berlusconi seldi félagið til kínverska viðskiptajöfursins Li Yonghong á síðasta ári. Li þurfti að fá lán frá bandarísku umboðsmannafyrirtæki fyrir kaupunum og þarf það lán að greiðast til baka í október á þessu ári.

Félagið er rekið með tapi ár eftir ár en þrátt fyrir það eyddi það 270 milljónum bandaríkjadala í nýja leikmenn síðasta sumar og braut þar með reglur UEFA um „sanngjarna viðsskiptahætti“ (e. Financial Fair Play) þar sem félög mega ekki eyða um efni fram.

Þar sem Milan endaði í sjötta sæti ítölsku deildarinnar fékk liðið aðeins sæti í Evrópudeildinni á næsta tímabili, en ekki Meistaradeild Evrópu sem var þó markmiðið hjá félaginu.

AC Milan hefur unnið ítölsku deildina 18 sinnum og er næst sigursælasta lið sögu Meistaradeildarinnar. Verði liðinu bönnuð þáttaka í Evrópukeppni næsta tímabil verður það í fyrsta skipti sem liði frá stóru þjóðunum fimm; Englandi, Frakklandi, Þýskalandi, Spáni og Ítalíu, er meinuð þáttaka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×