Sport

Berst fyrir því að nota kannabis í NFL

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
James í leik með Tampa Bay
James í leik með Tampa Bay vísir/getty
Bandaríski NFL leikmaðurinn Mike James segist þurfa að neyta kannabisefna til þess að spila íþróttina og vill fá leyfi til þess að spila með kannabis í blóðinu.

James, sem er samningslaus eins og er, hefur lagt inn formlega beiðni um undanþágu frá banni á kannabis. Beiðninni var hafnað vegna ófullnægjandi sannanna um að hann þyrfti í raun á efnunum að halda en James á enn í viðræðum við forráðamenn deildarinnar.

„Það að leggja inn beiðnina var mikil áhætta og gæti hafa kostað mig ferilinn,“ sagði James við BBC.

„En þetta var eitthvað sem ég þurfti að gera. Ég er í þeirri stöðu að ég verð að gera þetta til að endurheimta líf mitt og ég get hjálpað leikmönnunum í deildinni með þessu.“

James var valinn sjötti í nýliðavalinu árið 2013 af Tampa Bay Buccaneers en hann brotnaði á ökkla á sínu fyrsta tímabili og hefur ferill hans aldrei náð almennilega af stað eftir það þar sem James hefur glímt við mikla verki í ökklanum síðan þá og varð háður verkjalyfjum.

„Ég datt í þann pakka að gera hvað sem ég gat til þess að komast inn á völlinn en ég var farin að hafa skaðleg áhrif á líf mitt fyrir utan völlinn. Fíkn er erfiður sjúkdómur en kannabis gefur mér annan valkost.“

Kannabis er löglegt í Flórídafylki og segir James neyslu þess hafa hjálpað sér mjög mikið að slá á verkina og fíknina. Efnið er hins vegar ekki leyfilegt í NFL deildinni. James segir að þrátt fyrir að efnið sé ólöglegt sé líklega meira en helmingur leikmanna deildarinnar sem noti kannabis og margir styðji við bakið á honum í baráttunni við að fá að nota kannabis.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×