Umsókn Morokkó um HM 2026 staðfest │Kosið 13. júní Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. júní 2018 09:45 Tillaga að leikvanginum í Oujda, einum af 14 leikvöngum mögulegrar lokakeppni HM í Morokkó mynd/bbc
Umsókn Morokkó um að halda HM 2026 í fótbolta hefur staðist skoðun FIFA og mun keppa við umsókn Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó þrátt fyrir að teljast áhættusöm í þremur flokkum mats FIFA. Umsóknin fékk 2,7 af 5 mögulegum í áhættumatsskoðunum FIFA á meðan sameiginlegt bið Norður-Ameríkuþjóðanna fékk 4 af 5. Hefði umsókn Morokkó fengið 2 eða lægri einkunn hefði henni verið hafnað. Níu af þeim 14 leikvöngum sem eru í umsókninni eru enn óbyggðir og hinir fimm þurfa allir á endurbreytingum að halda til að standast kröfur FIFA. Þá eru aðeins tveir leikvanganna umkringdir fullnægjandi gistirímum og samgöngur til og frá leikvöngunum fengu einnig áhættusama einkunn. FIFA fékk hins vegar tryggingu fyrir því frá stjórnvöldum Morokkó að fjöldi gistiríma í borgunum 12 verði orðinn fullnægjandi árið 2026. Samkvæmt umsókn Morokkó mun uppbyggingin sem þarf fyrir HM kosta 12 milljarða punda en heimsmeistaramótið 2026 verður það fyrsta þar sem þáttökuþjóðir verða 48. Það ætti ekki að þurfa að ráðast í neina byggingarvinnu fyrir umsókn Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó. Báðar umsóknir verða teknar fyrir á fundi 10. júní þar sem þær þurfa að fá samþykki áður en kosið verður á milli þeirra þann 13. júní. Þar munu allar 207 þjóðirnar sem eru hluti af FIFA kjósa um staðsetningu HM 2026. Morokkó hefur fjórum sinnum áður sótt um að halda HM; 1994, 1998, 2006 og 2010, en aldrei orðið ágengt. HM hefur aðeins einu sinni verið haldið í Afríku, árið 2010 í Suður-Afríku. Bandaríkin héldu keppnina árið 1994 og sóttu um mótið 2022 en biðu þar lægri hlut gegn Katar. Mexíkó hélt lokakeppni HM 1970 og 1986. HM hefur aldrei farið fram í Kanada. HM í Rússlandi hefst eftir 12 daga, fimmtudaginn 14. júní, á leik Rússlands og Sádi-Arabíu. Ísland tekur þátt í lokakeppni HM í fyrsta skipti í sumar og er fyrsti leikur gegn Argentínu í Moskvu þann 16. júní.
Fótbolti Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Enski boltinn Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport Fleiri fréttir Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt „Vorum svo ógeðslega nálægt þessu“ „Hann var alltaf mættur“ Einkunnir Íslands: Albert og Hákon bestir í grátlegu tapi „Vorum grátlega nálægt þessu“ Sjá meira