Bíó og sjónvarp

Adrift þriðja vinsælasta kvikmyndin

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Adrift verður frumsýnd hér á landi þann 13. júní næstkomandi.
Adrift verður frumsýnd hér á landi þann 13. júní næstkomandi. STXFILMS
Adrift, nýjasta stórmynd Baltasars Kormáks, var þriðja aðsóknarmesta myndin í bandarískum kvikmyndahúsum um helgina. Kvikmyndin er talin hafa rakað inn um 11,5 milljónum bandaríkjadala þessa fyrstu sýningarhelgi, eða næstum 1,2 milljörðum króna.

Myndin er talin hafa kostað um 35 milljónir dollara í framleiðslu, eða um 3,6 milljarða íslenskra króna. Því má ætla að fyrsta sýningarhelgin hafi náð að greiða upp um þriðjung kostnaðarins.

Á vef Rotten Tomatoes kemur fram að Adrift sé jafnframt sú nýja kvikmynd, þ.e. kvikmynd sem frumsýnd var um helgina, sem aflaði mestra tekna. Aðeins stórmyndirnar Solo: A Star Wars Story og Deadpool 2 nutu meiri vinsælda.

Sjá einnig: Mynd Baltasars fær blendnar viðtökur

Athyglisvert verður að teljast að spá Variety um gengi myndarinnar gekk nokkurn veginn fullkomlega eftir. Glanstímaritið áætlaði í liðinni viku að Adrift yrði þriðja aðsóknarhæsta myndin og kynni að hala inn um 7 til 11 milljónum bandaríkjadala.

Eins og Vísir greindi frá fyrir helgi voru fyrstu viðtökur Adrift heldur blendnar. Myndin virðist þó hafa rétt nokkuð úr kútnum síðustu daga, 71% gagnrýnenda teljast nú hrifnir af myndinni og heil 87% áhorfenda. Adrift fær til að mynda fjórar stjörnur af fjórum mögulegum frá gagnrýnanda breska stórblaðsins Guardian. Adrift verður frumsýnd hér á landi 13. júní næstkomandi.

Til gamans má geta að Íslendingar koma að tveimur aðsóknarmestu kvikmyndunum vestanhafs þessa helgina. Að frátalinni fyrrnefndri Adrift ber Elísabet Ronaldsdóttir ábyrgð á klippingu Deadpool 2, sem situr í öðru sæti listans. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×