Viðskipti erlent

Svona virkar Instagram í raun og veru

Bergþór Másson skrifar
Instagram, samfélagsmiðill og myndaforrit, sett á laggirnar árið 2010.
Instagram, samfélagsmiðill og myndaforrit, sett á laggirnar árið 2010. Variety
Algóriþmi myndaforritsins Instagram hefur aldrei verið útskýrður síðan forritið var sett á laggirnar árið 2010, þangað til núna. Á nýlegum blaðamannafundi í höfuðstöðvum Instagram í San Fransisco ljóstruðu stjórnendur fyrirtækisins upp hvernig forritið virkar í raun og veru.

Í júlí 2016 skipti Instagram um algóriþma og þar af leiðandi sáu notendur ekki hverja einustu færslu í réttri og beinni tímalínu lengur, heldur réðust færslubirtingar eftir flóknum algóriþma forritsins. Með gamla algóriþmanum misstu notendur af 70% af öllum færslum og 50% af færslum vina sinna. Rétt yfir 800 milljónir manns notast við Instagram. Stjórnendur fyrirtækisins segja að notendur sjái nú 90% af því efni sem þau vilja í raun og veru sjá, þökk sé algóriþmanum.

Það sem þú sérð á Instagram ræðst aðallega af þremur þáttum; áhuga, (e. interest) nýleika (e. recency) og sambandi (e. relationship). Áhugi felst í því hvernig forritið notar gögn til þess að greina hegðun þína og gerir þar af leiðandi ráð fyrir því hvernig efni þú vilt helst sjá. Nýleika þátturinn forgangsraðar nýlegu efni á skipulagðan hátt. Sambands þátturinn greinir samband þitt við aðra notendur forritsins og mælir það á samskiptum í formi athugasemda, „læka“ og „taggaðra“ mynda.

Aðrir þættir sem hafa áhrif á hvað þú sérð í forritinu þitt eru tíðni (e. frequency) og notkun (e. usage). Þessir þættir breytast eftir því hversu mikið og hversu oft þú notar Instagram. Þeir vinna saman í því að sýna þér efni sem þú hefur mögulega misst af.

Einnig er tekið til greina hversu mikið af fólki þú fylgist með. Því fleiri sem þú eltir, því minni líkur eru að þú munt sjá allt frá öllum.

Greinin er unnin upp úr umfjöllun TechCrunch og Hypebeast


Tengdar fréttir

Zuckerberg kemur fyrir Evrópuþing

Zuckerberg verður gert að svara fyrir gjörðir stjórnarmanna en Facebook deildi upplýsingum 87 milljóna notenda með greiningarfyrirtækinu Cambridge Analytica.

Segja Facebook stunda persónunjósnir

Mark Zuckerberg er sakaður um að hafa þróað aðgerðaáætlun fyrir Facebook sem miðaði að því að nýta sér mikið magn persónulegra upplýsinga notenda til þess að fyrirtæki hans gæti grætt milljarða og gert út af við keppinauta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×