Viðskipti innlent

Sunnubúð verður tíunda Krambúðin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Krambúðin í sólinni í dag.
Krambúðin í sólinni í dag. Vísir/Vilhelm
Ný Krambúð mun opna við Lönguhlíð í hádeginu á morgun. Verslunin kemur í stað Sunnubúðar sem hefur verið lokuð síðasta mánuðinn vegna talsverðra breytinga.

Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, segir þetta afar ánægjulegt skref. Sunnubúð hefur verið í eigu Samkaupa síðan árið 2016 og nú sé tímabært að bæta þessa rótgrónu verslun í Hlíðunum enn frekar.

Rekstrarstjórinn Gísli Gíslason í góðum gír í dag.Vísir/Vilhelm

Næsti kafli í 67 ára verslunarsögu

„Með endurbótunum ætlum við að koma betur til móts við nútíma þarfir viðskiptavina. Á þeim langa tíma sem verslun hefur verið starfrækt við Lönguhlíð hafa orðið gríðarlegar breytingar á samkeppnisumhverfinu og neysluháttum. Við viljum stíga inn í nútímann og flétta saman kaupmanninn á horninu og samkeppnishæf verð en með tilkomu Krambúðarinnar munu um þrjú hundruð vörunúmer lækka í verði, svo sem mjólk, brauð, hveiti og smjör svo eitthvað sé nefnt og halda kjörorðunum okkar hagstætt fyrir heimilið hátt á lofti, “ segir Gunnar Egill.

Gunnar segir mikinn heiður fólginn í að taka við keflinu í Lönguhlíð og fá að skrifa næsta kafla í 67 ára verslunarsögu hverfisins.

„Hér hefur verið verslun síðan árið 1951 og við erum meðvituð um að fjölmargir bera sterkar taugar til Sunnubúðar. Við erum stolt af því að fá þetta tækifæri og munum leggja okkur fram um að varðveita og halda á lofti sögunni sem er hér allt umlykjandi. Meðal annars með því að setja upp sérstakan myndavegg þar sem stiklað er á umfangsmikilli verslunarsögu búðarinnar og höfum fengið með okkur gott fólk til að skerpa á henni með okkur. Við erum því mjög spennt að opna dyr Krambúðarinnar og taka á móti Hlíðarbúum,“ útskýrir Gunnar.

Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa.

Lengri opnunartími

Gunnar segir starfsfólk og viðskiptavini hafa tekið vel í breytingarnar, enda hafi eftirspurnin eftir breyttum háttum og ýmiss konar viðbótarþjónustu orðið sífellt meira áberandi.

„Við munum halda uppteknum hætti og erum til staðar fyrir fólkið í hverfinu. Við erum ánægð með að njóta til þess liðsinnis sama starfsfólks og undanfarin ár. Við ætlum okkur að tvinna saman það besta úr fortíðinni og það vænlegasta til framtíðar í nýrri Krambúð. Mikilvægur hluti af því er að geta stóreflt framboð okkar á tilbúnum réttum, samlokum, nýbökuðu brauði og góðu kaffi fyrir fólkið í hverfinu – sem og rýmkað opnunartímann verulega en með tilkomu Krambúðar verður opnað fyrr á morgnana og lokað seinna á kvöldin.“

Krambúðin verður opin frá 8 til 23 alla virka daga og frá 9 til 23:30 um helgar. Við opnun Krambúðarinnar í Lönguhlíð verða Krambúðirnar orðnar tíu talsins en hinar eru á Skólavörðustíg í Reykjavík, Kópavogi, Akureyri, Húsavík, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Akranesi og á Selfossi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×