Menning

Ætla að toppa sjálfa mig

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
„Þegar fólk sér verk mín tengir það ósjálfrátt við dýrið í sjálfu sér,“ segir Hrafnhildur.
„Þegar fólk sér verk mín tengir það ósjálfrátt við dýrið í sjálfu sér,“ segir Hrafnhildur. Vísir/Ernir
„Ég brást nánast við eins og fótboltakappi sem fer niður á hnén og fagnar. Ég varð óskaplega glöð,“ segir Hrafnhildur Arnardóttir myndlistarkona sem verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2019, ásamt sýningarstjóranum Birtu Guðjónsdóttur.

„Mig hefur alltaf langað til að sýna myndlist mína á Feneyjatvíæringnum. Ég er dálítill framagosi,“ segir Hrafnhildur og hlær. Hrafnhildur, sem er fædd árið 1969, hefur búið í Bandaríkjunum í 23 ár. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín, en hún vinnur mikið með mannshár, sem verður í aðalhlutverki í verki hennar fyrir Feneyjatvíæringinn.

„Ef maður er spretthlaupari sem fer á Ólympíuleikana þá fer maður ekki að keppa í kúluvarpi. Feneyjatvíæringurinn er Ólympíuleikar í myndlist og þar sýna listamenn sitt besta. Hárverkin eru mitt vörumerki og fólk nær sterkri tengingu við þau.“

Spurð nánar um verk sitt í íslenska skálanum í Feneyjum á næsta ári segir Hrafnhildur: „Í þetta skipti ætla ég að toppa sjálfa mig. Þegar fólk gengur inn í sýningarrýmið þá sér það ekki sjálft rýmið, heldur er inni í verkinu sem byggist upp á þremur hellum. Allt í kringum áhorfandann er loðið því hárið er alls staðar. Ég nota síðan æpandi liti sem skapa eins konar sjónrænan hávaða. Áhrifin eiga að kveikja í öllum taugaendum í höfði fólks og skapa hamingju.“

Hrafnhildur hefur tvisvar sinnum farið á Feneyjatvíæringinn. „Þar er mikið í gangi og til þess að setja mark sitt á alla ösina og kösina þarf maður að sýna sterkt verk. Ég er ekkert róleg í tíðinni þegar kemur að myndlist, verk mín eru groddaleg en um leið falleg og efniviðurinn höfðar til fólks af því við erum öll með hár á líkamanum. Þegar fólk sér verk mín tengir það ósjálfrátt við dýrið í sjálfu sér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×