Viðskipti innlent

Bátasmiðjan Rafnar hættir rekstri á Íslandi

Kristinn Ingi Jónsson og Sveinn Arnarsson skrifa
Fyrirtækið hefur hannað byltingarkenndan skrokk sem vakið hefur heilmikla athygli erlendis
Fyrirtækið hefur hannað byltingarkenndan skrokk sem vakið hefur heilmikla athygli erlendis Vísir/Stefán
Bátasmiðjan Rafnar ehf. hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu og flytur fyrirtækið til útlanda. Í rúman áratug hefur fyrirtækið þróað, hannað og smíðað nýja tegund báta og hefur skrokkhönnun þeirra náð athygli erlendra aðila.

Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Rafnars, segir þetta erfiða en nauðsynlega aðgerð í þróun fyrirtækisins. „Það má segja að fyrirtækið sé að slíta barnskónum og er að verða að fullvaxta einstaklingi. Markaður fyrirtækisins er erlendis og það er erfitt að standa í þessum rekstri hér á landi og eiga við íslenskan gjaldmiðil,“ segir Björn í samtali við Markaðinn.

Síðustu ár hafa frumgerðir báta fyrirtækisins verið smíðaðar á Kársnesi í Kópavogi og í framhaldi hafa bátarnir verið kynntir og seldir innlendum aðilum á borð við Landhelgisgæslu Íslands og til ýmissa björgunarsveita, og til erlendra stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.

„Við höfum fengið afar góðar viðtökur erlendis og þessi nýja hönnun okkar hefur reynst afar vel. Því eru núna uppi viðræður um að smíði þessara skipa verði fram haldið erlendis fyrir erlendan markað,“ segir Björn. Ekki samkeppnishæft um verð Ástæður þess að fyrirtækið hættir rekstri sínum hér á landi eru að mestu vegna erfiðra skilyrða í íslensku efnahagslífi, að sögn Björns.

„Það umhverfi sem við búum við hér á landi, með sterku gengi krónunnar og að vera svona langt frá okkar meginmörkuðum, veldur því að við erum ekki samkeppnishæfir um verð,“ bætir Björn við. „Þessir þættir sem og og óhagstæð viðskiptakjör birgja fyrir lítinn íslenskan markað valda því að við þurfum að endurskoða fyrirtækið.“

Hugarfóstur stoðtækjarisa

Björn segir það þyngst að þurfa að segja upp því góða starfsfólki sem hefur starfað hjá fyrirtækinu. „Það er auðvitað sárast að þurfa að segja öllum upp og loka starfsstöðinni hér í Kópavogi. Hér munu allir starfsmenn hætta að mér meðtöldum. En því miður teljum við þetta skref óhjákvæmilegan hlut í þróun fyrirtækisins.“ 

Rafnar tapaði tæpum 436 milljónum króna árið 2016 en tapið var um 513 milljónir árið áður. Félagið hefur ekki skilað inn ársreikningi fyrir síðasta ár. Eignirnar námu rúmlega 663 milljónum króna í lok árs 2016 en á sama tíma var eigið fé um 368 milljónir og eiginfjárhlutfallið 56 prósent. Alls starfaði 21 starfsmaður hjá fyrirtækinu í lok síðasta árs. 

Rafnar er hugarfóstur Össurar Kristinssonar, stofnanda stoð tækjaframleiðandans Össurar, en hann hefur fjármagnað uppbyggingu fyrirtækisins frá stofnun árið 2005. Fram kom í Morgunblaðinu í desember í fyrra að heildarframlag Össurar til fyrirtækisins næmi um fimm milljörðum. Össur sagðist í viðtali við blaðið hafa óbilandi trú á fyrirtækinu og framleiðslunni sem það byggir grundvöll sinn á. Hins vegar væri komið að þeim tímapunkti að fleiri kæmu að enda væri það nauðsynlegt til þess að fyrirtækið gæti þróast áfram. 


Tengdar fréttir

Sterkari króna þyngir róður íslenskra hótela

Rekstrarskilyrði hótela á Íslandi í vor hafa ekki verið þyngri í fimm ár. Staðan erfiðust hjá hótelum á landsbyggðinni. Fyrirtækin sækjast eftir hagræðingu í rekstri með sameiningu. Ný skýrsla sýnir meiri framlegð hjá stærri fyrirtækjum






Fleiri fréttir

Sjá meira


×