Lífið

Landslið tónlistarmanna hvetur strákana okkar áfram í gæsahúðamyndbandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Augnablikið þegar Ísland vann England í 16-liða úrslitum EM 2016 í Nice.
Augnablikið þegar Ísland vann England í 16-liða úrslitum EM 2016 í Nice.
Landslið íslenskra söngvara hafi sameinað krafta sína í nýju stuðningsmannalagi sem er komið út fyrir HM í Rússlandi. Hópurinn kallar sig A-liðið og heitir lagið Syngjum áfram Ísland.

Þórir Úlfarsson samdi lagið og var það Kristján Hreinsson sem samdi textann.

Söngvararnir sem koma fram í laginu eru þau Björgvin Halldórsson, Pálmi Gunnarsson, Páll Rósinkranz, Stefán Hilmarsson, Eyjólfur Kristjánsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Dagur Sigurðsson, Grétar Örvarsson, Sigríður Beinteinsdóttir, Stefanía Svavarsdóttir, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Selma Björnsdóttir.

Nú er komið út myndband við lagið sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×