Innlent

Giftist þroskaskertri konu og sótti um dvalarleyfi fimm dögum síðar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hæstiréttur sneri við dómi héraðsdóms.
Hæstiréttur sneri við dómi héraðsdóms. Vísir/GVA
Hæstiréttur Íslands ógilti í gær hjónaband þroskaskertrar konu og hælisleitanda. Dómurinn sneri með því við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.

Konan kynntist manninum árið 2016 en þá hafði umsókn hans um hæli verið synjað. Tveimur mánuðum síðar höfðu þau gengið í hjónaband hjá sýslumanninum í Reykjavík. Fjölskylda konunnar fékk vitneskju um hjónabandið í upphafi árs 2017 en fimm dögum eftir hjónavígsluna hafði maðurinn sótt um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli hjúskaparins.

Í vitnisburði konunnar fyrir héraðsdómi kom fram að hún hefði tekið ákvörðun um að giftast manninum vegna þess að hún vildi að hann fengi að dvelja áfram hér á landi. Þá vildi hún forða honum frá refsingum sem biðu í heimalandinu. Dómurinn taldi ekki skilyrði til ógildingar hjúskaparins fyrir hendi og þyrfti konan því að sækja um skilnað til að binda enda á hann.

Í málinu lágu fyrir skýrslur sérfræðinga um andlegt ástand konunnar en þar segir meðal annars að hugtakaskilningur hennar sé á við sex til átta ára barn og skilningur á félagslegum aðstæðum á við sex ára barn.

„Hún hafi gefið þá lýsingu á hjónabandi að það feli í sér að einstaklingar séu lengi saman og dýpri lýsing eða skilningur á því hafi ekki fengist fram,“ segir meðal annars í matsgerðinni. Færni hennar til skilnings á eðli hjónabands sé verulega skert.

Dómurinn taldi ljóst með hliðsjón af sérfræðigögnunum að konan hefði ekki verið bær til að takast þá skuldbindingu á hendur að ganga í hjúskap. Var hjónabandið því ógilt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×