Innlent

Vongóð um lendingu í byrjun næstu viku

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Líf telur líklegt að nýr meirihluti verði myndaður fyrr en seinna
Líf telur líklegt að nýr meirihluti verði myndaður fyrr en seinna Vísir/Vilhelm
Oddviti Vinstri Grænna er vongóð um að lending náist í meirihlutaviðræðum í Reykjavík í byrjun næstu viku. Áfram verður fundað um helgina, en oddviti Viðreisnar segir samstöðu ríkja um helstu málefni.

Formlegar meirihlutaviðræður Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og VG hófust þann 31.maí og hafa því staðið í 10 daga. Oddvitar flokkanna hafa undanfarna viku fundað í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og halda þeir fundir áfram að sögn Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar.

„Við ætlum nú aðeins að hittast um helgina, stutt. Þó við séum að gera þetta svona á fjölskylduvænan hátt þá ætlum við að gera það því allir nýir borgarfulltrúar svona af praktískum ástæðum eru að fara á námskeið á mánudagsmorguninn. Það setur ákveðið strik í tímaplanið,“ segir Þórdís Lóa.

Eiga enn eftir að semja um borgarstjórastólinn

Hún segir að enn hafi ekkert verið rætt um skipan í borgarstjórastólinn og aðrar stöður, en góð samstaða sé hins vegar um stóru málefnin.

„Það gengur bara mjög vel. Það má ekki gleyma því að þegar við fórum af stað í formlegar viðræður þá vorum við náttúrulega búin að ræða saman allir þessir borgarstjórnarflokkar, bæði á hægri og vinstri væng. Við vorum öll búin svolítið að þreifa á samlegðaráhrifunum þannig að það hefur ekkert komið óvænt upp nema bara það sem við vissum fyrir,“ segir Þórdís Lóa.

Hún vill ekki segja til um hvenær viðræður gætu klárast. Í samtali við fréttastofu í morgun sagði Líf Magneudóttir, oddviti VG, hins vegar líklegt að lending gæti náðst í byrjun næstu viku. Þórdís Lóa segir a.m.k. líklegra en ekki að úr viðræðunum verði borgarstjórnarmeirihluti.

„Já, ég geri mér vonir um það, en þetta eru samningaviðræður og það er ekkert klárt fyrr en það er klárt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×