Sport

Fjögur gull í Liechten­stein og tveggja áratuga gamalt Íslandsmet slegið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kolbeinn Höður nældi í tvö gull.
Kolbeinn Höður nældi í tvö gull. vísir/daníel
Íslenska frjálsíþróttafólkið okkar nældi sér í fjögur gull á Smáþjóðameistaramótinu í frjálsum íþróttum en keppt var í Liechten­stein í dag.

Kolbeinn Höður Gunnarsson nældi ser í gull í 200 metra hlaupi en hann kom fyrstur í mark á 20,98 sekúndum. Hann var þrettán sekúndubrotum á ndan Paisios Dimitradis frá Kýpur.

Ívar Kristinn Jasonarson nældi sér einnig í gull en það var í 400 metra hlaupi. Hann hljóp á 47,76 sekúndum. Næstur kom Vincent Karger frá Lúxemborg á 48,01.

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir vann til silfurverðlauna í 200 metra hlaupi kvenna en hún kom í mark á 23,61 sekúndu. Guðbjörg vann ekki bara silfur heldur bætti hún einnig 21 árs gamalt Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur.

Guðrún hljóp á 23,81 í Óðinsvé sumarið 1997 en nú bætir Guðbjörg Jóna metið. Guðbjörg er sautján ára gömul og tími hennar er sá besti í Evrópu, í átján ára og yngri, á þessu ári. Magnaður árangur.

Guðni Valur Guðnason kastaði lengst í kringlukasti en hann kastaði 60,25 metra. Hann kastaði nokkur lengra en næsti maður, Rafail Antoniou, sem kastaði 58,99 metra.

Íslenska sveitin í boðhlaupi kom fyrst í mark en í íslenska hópnum hlupu þeir Kristinn Torfason, Ari Bragi, Kolbeinn Höður og Ívar Kristinn. Þeir komu í mark á 1:52,71 sekúndum en í öðru sæti var Moldóva á 1:53,63.

Í 100 metra spretthlaupi kom Kolbeinn Höður sá þriðji í mark en hann hljóp á 10,79 sekúndum. Haldhafi Íslandsmetins, Ari Bragi Kárason, lenti í fimmta sætinu á 10,94 sekúndum.

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir nældi sér í brons í hástökkvi kvenna. Hún stökk hæst 1,73 og var jöfn Despoina Charalambous frá Kýpur sem stökk jafn hátt.

Thelma Lind Kristjánsdóttir nældi sér í silfur í kringlukasti er hún kastaði 52,80 metra. Gullið tók Dimitriana Surdu sem kastaði 53,13.

Þórdís Eva Steinsdóttir, hlaupari úr FH, fékk brons í 400 metra hlaupi. Hún kom í mark á 56,49 sekúndum en gullið tók Kalliopi Kountouri frá Kýpur á 54,64 sekúndum.

Íslenska sveitin í boðhlaupi kvenna nældi sér í silfur. Tíana Ósk, Þórdís Eva, Hrafnhild Hermóðsdóttir og Guðbjörg Bjarnadóttir hlupu fyrir Íslands hönd. Þær komu í mark á 2:11,36 en fremstar voru stelpurnar frá Kýpur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×