Lífið

Ótrúlegt fimleikaatriði vekur heimsathygli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tyra Banks var að elska þetta atriði.
Tyra Banks var að elska þetta atriði.
Fimleikahópur sem kallar sig Zurcaroh kom sá og sigraði í raunveruleikaþáttunum America's Got í gær.

Þessi fjölmenni hópur flutti atriði sem fer hreinlega í sögubækurnar í þáttunum en hópurinn er skipaður af fólki á öllum aldri.

Dómararnir og allur salurinn hreinlega göptu á meðan atriðinu stóð og svo var komið að kynninum, Tyra Banks, sem ýtti á gullhnappinn fræga sem skilar hópnum beint í úrslit.

Þetta ótrúlega atriði má sjá hér að neðan má margar milljónir hafa horft á það á Facebook og YouTube.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×