Innlent

Austfirsku pönkararnir breyta plötuumslagi umdeildrar plötu

Jakob Bjarnar skrifar
Hvort útlitsbreytingar á væntanlegri plötu Séra Davíðs Þórs og pönkaranna að austan verði til að milda gramt geð Arnþrúðar, er ekki vitað á þessu stigi.
Hvort útlitsbreytingar á væntanlegri plötu Séra Davíðs Þórs og pönkaranna að austan verði til að milda gramt geð Arnþrúðar, er ekki vitað á þessu stigi.
Austfirska pönkhljómsveitin Austurvígstöðvarnar hafa nú breytt plötuumslagi fyrirhugaðrar plötu sinnar: Útvarp Satan. Trymbill hljómsveitarinnar, Jón Knútur Ásmundsson, segir það ekki vegna þess að þeir hafi runnið á rassinn með útlit sem var sláandi líkt lógói Útvarps Sögu. Á þessu stigi liggur ekki fyrir hvort þessi útlitsbreyting mun milda gramt geð fólksins á útvarpsstöðinni umdeildu.

„Menn hafa verið með allskyns meiningar um að við séum raggeitur og allt það, að við þorum ekki að stela lógói Útvarps Sögu fyrir plötuna okkar og þar fram eftir götunum.

Staðreyndin er bara sú að lógóið hjá Sögu er forljótt en eftir smá snurfus er það beinlínis fallegt.

Vilji forsvarsmenn útvarpsstöðvarinnar nota hugmyndina okkar er þeim það velkomið. Við kærum ekki,“ tilkynnir trymbillinn borubrattur á Facebooksíðu sinni.

Heift milli klerks og útvarpsfólks

Sjaldan ef nokkru sinni hefur óútkomin hljómplata valdið eins miklum usla og Útvarp Satan. En kveikja nafngiftarinnar er þessi frétt Vísis. Væringarnar má rekja til heiftar sem ríkir milli forsprakka hljómsveitarinnar, Séra Davíðs Þórs Jónssonar sóknarprests í Laugarneskirkju og svo Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar á útvarpsstöðinni Útvarp Sögu.

Vísir ræddi á sínum tíma við Jón Knút um plötuna.

Arnþrúður hefur kært Séra Davíð til Biskupsstofu.
Andúðin milli þessara tveggja aðila kom fyrir alvöru fram með rimmu í útvarpsviðtali, þá er Séra Davíð Þór var að íhuga forsetaframboð. Strax mátti ljóst vera að þar voru engir perluvinir að spjalla og lauk tiltölulega stuttu viðtali með að Davíð Þór skellti á þau Arnþrúði og Pétur eftir að hafa kallað þau idjót.

Ekkert heyrist frá Biskupsstofu

Seinna spurðist að á væntanlegri plötu væri að finna brag um Arnþrúði, Arnþrúður er full. Það lagðist verulega illa í þau á Útvarpi Sögu, vægast sagt. Kærumálum á hendur Séra Davíð Þór, meðal annars frá Arnþrúði, hafa borist Biskupsstofu í kjölfar þessa. Pétur hefur svo ekki farið í grafgötur með þá skoðun sína að honum þyki ótækt að Davíð Þór sé starfandi á vegum Þjóðkirkjunnar.

Pétur segir, í samtali við Vísi, að enn sé ekkert að frétta frá Biskupsstofu, þau hafa ekkert heyrt en Vísir hefur sent fyrirspurnir þangað en hefur í tvígang fengið þau svör að enn hafi ekki verið tekin afstaða til málsins. Svo virðist Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi reynist afar erfitt að taka afstöðu til kærunnar og umkvartana, að finna Salómonsdóm í því máli því talsvert langt er um liðið síðan kærurnar voru settar fram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×