Viðskipti erlent

Kjúklingarækt Brasilíu í hættu

Samúel Karl Ólason skrifar
Brasilía er einn af heimsins stærstu útflytjendum kjúklings.
Brasilía er einn af heimsins stærstu útflytjendum kjúklings. Vísir/Getty
Olíuvinnslur og borpallar í Brasilíu eru stopp vegna þriggja daga verkfalls starfsmanna. Verkfall þetta fylgir verkfalli bílstjóra flutningabíla sem hefur lamað stærsta efnahag Suður-Ameríku í rúmlega viku. Verkföllin gætu haft gríðarlegar afleiðingar fyrir kjúklingabú ríkisins.

Verkfall vörubílstjóra í Brasilíu hefur dregið dilk á eftir sér og þá sérstaklega varðandi kjúklingarækt. Nú hafa starfsmenn olíuvinnsla einnig farið í verkfall og er farið að hitna undir forseta landsins Michel Temer. Óttast er að fleiri stéttir fari í verkfall á næstu misserum vegna óánægju fólks með ríkisstjórn og efnahag landsins.

Verkfall vörubílstjóra hefur leitt til skorts og stöðvað verksmiðjur víða um landið. Verst hefur það þó komið niður á kjúklingaræktendum í Brasilíu.

Þeir munu á morgun byrja að slátra um 24 milljónum fugla á dag þar sem ómögulegt hefur reynst að flytja fæði til kjúklingabýlanna vegna verkfalls vörubílstjóra. Nú þegar er búið að slátra um 64 milljónum fugla en áætlað er að þeir séu alls rúmlega milljarður í landinu.

Verkfallið gæti leitt til allsherjar hruns iðnaðarins í Brasilíu og gæti það tekið rúmlega tvö ár að bæta ástandið. Brasilía er einn af stærstu útflytjendum kjúklings á heimsvísu og því er um gífurlega hagsmuni að ræða.

Landbúnaðarráðherra Brasilíu sagði alla ræktunina byggja á um 1,2 milljónum hænsna. Drepist þær verði ómögulegt að ná iðnaðinum á réttan kjöl án dýrrar aðstoðar ríkisins. Ráðherrann sagði að það myndi koma verulega niður á fjárlögum ríkisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×