Viðskipti innlent

Ríkisskattstjóri birtir lista yfir 40 hæstu skattgreiðendur Íslands

Birgir Olgeirsson skrifar
Sigríður Vilhjálmsdóttir er í efsta sæti listans en hún greiddi á fimmta hundrað milljón krónur í skatt á liðnu ári.
Sigríður Vilhjálmsdóttir er í efsta sæti listans en hún greiddi á fimmta hundrað milljón krónur í skatt á liðnu ári.
Ríkisskattstjóri hefur birt lista yfir 40 hæstu skattgreiðendur Íslands á árinu 2018. Á listanum er Sigríður Vilhjálmsdóttir í Reykjavík efst en hún átti stóran hlut í Fiskveiðihlutafélaginu Venus, sem hefur tengsl við HB Granda, ásamt Kristjáni Loftssyni og Birnu Loftsdóttur sem einnig eru á listanum.

Á listanum er einnig Sigurður Sigurbergsson, Magnús Soffaníasson og Rúnar Sigtryggur Magnússon úr Grundafjarðarbæ en allir eru þeir tengdir útgerðinni Soffaníasi Cecilssyni. Fisk Seafood keypti öll hlutabréf í Soffaníasi Cecilssyni í fyrra.

Stjórn Glitnis HoldCo, sem sér um eignir þrotabús Glitnis fyrir erlenda vogunarsjóði, skipa sér á listann en það eru þeir Michael Wheeler, með 259 milljónir króna, Tom Gröndahl, með 231 milljón króna, og Steen Parholt, með 231 milljón króna.

Þá eru Róbert Wessman og Valur Ragnarsson, forstjóri lyfjafyrirtækjanna Alvogen og Medís, á listanum. Útgerðarmaðurinn Bergvin Oddsson seldi Glófaxa til Vinnslustöðvarinnar í fyrra og er á listanum ásamt syni sínum, Lúðvík Bergvinssyni.

Benóný Ólafsson er á listanum en hann er stofnandi og aðaleigandi Gámaþjónustunnar sem var seld til GÞ Holding ehf. í fyrra.

Listinn er eftirfarandi:

1. Sigríður Vilhjálmsdóttir Reykjavík 425.502.876 

2. Sigurður Sigurbergsson Grundarfjarðarbær 388.245.493 

3. Magnús Soffaníasson Grundarfjarðarbær 387.180.911 

4. Rúnar Sigtryggur Magnússon Grundarfjarðarbær 382.526.842 

5. Hulda Guðborg Þórisdóttir Garðabær 328.980.716 

6. Kristján Loftsson Reykjavík 295.664.911 

7. Birna Loftsdóttir Hafnarfjörður 284.546.209 

8. Michael Wheeler Reykjavík 259.133.879 

9. Benoný Ólafsson Reykjavík 253.659.186 

10. Tom Gröndahl Reykjavík 231.883.635 

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, er í átjánda sæti listans.Vísir/eyþór
11. Steen Parsholt Reykjavík 231.883.635 

12. Benedikt Rúnar Steingrímsson Dalabyggð 231.816.547 

13. Magnús Jóhannsson Hafnarfjörður 228.677.671 

14. Jens Valgeir Óskarsson Grindarvíkurbær 194.971.414 

15. Friðþór Harðarson Sveitarfélagið Hornafjörður 162.970.623 

16. Rögnvaldur Guðmundsson Garðabær 161.817.074 

17. Einar Benediktsson Seltjarnarnes 151.094.812 

18. Vilhelm Róbert Wessman Reykjavík 142.455.851 

19. Kristján V Vilhelmsson Akureyri 140.664.593 

20. Sólveig Guðrún Pétursdóttir Reykjavík 137.225.344 

Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, er í 28. sæti listans.Vísir
21. Richard Katz Reykjavík 135.582.626 

22. Kristján Már Gunnarsson Kópavogur 121.198.738 

23. Ingólfur Hauksson Reykjavík 105.228.949 

24. Grímur Karl Sæmundsen Reykjavík 104.972.342 

25. Þorsteinn Már Baldvinsson Akureyri 104.808.583 

26. Birgir Örn Guðmundsson Mosfellsbær 103.910.717 

27. Guðmundur Gylfi Guðmundsson Mosfellsbær 103.655.375 

28. Liv Bergþórsdóttir Garðabær 100.412.969 

29. Ársæll Hafsteinsson Flóahreppur 97.964.051 

30. Snorri Arnar Viðarsson Kópavogur 91.550.136 

Valur Ragnarsson, forstjóri lyfjafyrirtækisins Medis, er í 40. sæti listans.
31. Magnea Bergvinsdóttir Vestmannaeyjar 90.865.588 

32. Haraldur Bergvinsson Vestmannaeyjar 90.394.191 

33. Lúðvík Bergvinsson Reykjavík 90.329.578 

34. Lárus Kristinn Jónsson Reykjavík 89.808.909 

35. Bergvin Oddsson Vestmannaeyjar 89.592.489 

36. Ragnar Björgvinsson Reykjavík 87.687.820 

37. Örn Gunnlaugsson Kópavogur 85.214.906 

38. Hulda Vilmundardóttir Grundarfjarðarbær 84.767.981 

39. Tómas Már Sigurðsson Reykjavík 82.325.537 

40. Valur Ragnarsson Reykjavík 81.305.689






Fleiri fréttir

Sjá meira


×