Viðskiptastríð yfirvofandi eftir að Trump leggur verndartolla á ESB, Kanada og Mexíkó

Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að leggja verndartoll á stál- og álinnflutning frá Evrópusambandinu, Mexíkó og Kanada. Fastlega má gera ráð fyrir mótaðgerðum og því má segja að viðskiptastríð sé hafið.
Wilbur Ross, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, er í París þar sem hann ræddi við evrópskra kollega sína í morgun. Þeir reyndu að afstýra þessari ákvörðun allt fram á síðustu stundu en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Ross segir að til að byrja með verði lagður 25% tollur á stál og 10% tollur á ál. Sú ákvörðun tekur gildi á miðnætti að staðartíma í Washington á morgun.
Hann boðar frekari viðræður við fulltrúa Evrópusambandsins, Kanada og Mexíkó þar sem enn eigi eftir að leysa fleira mál tengd milliríkjaviðskiptum þeirra.
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna segja Trump stofna efnahagsbata fjölda ríkja í hættu með verndartollum sínum. Trump segist hins vegar ekki eiga annara kosta völ þar sem stál- og áliðnaðinum vestanhafs hafi lengi blætt vegna ósanngjarnrar samkeppni. Það grafi undan þjóðaröryggi Bandaríkjanna.
Tengdar fréttir

Kínverjar og Bandaríkjamenn slá viðskiptastríði sínu á frest
Ríkin ætla að falla frá gagnkvæmum tollum eftir að Kínverjar samþykktu að auka innflutning á bandarískum vörum og þjónustu.

Þúsund hagfræðingar vara Trump við að endurtaka fyrri mistök
Rúmlega eitt þúsund hagfræðingar, þar á meðal 14 nóbelsverðlaunahafar, hafa sett nafn sitt við viðvörun til Bandaríkjaforsetans Donald Trump.

Kína og Evrópa vara Trump við afleiðingum viðskiptastríðs
Innan Evrópusambandsins er rætt um að leggja toll á bandarískar vörur sem koma frá heimaríkjum leiðtoga Repúblikanaflokksins.