Enski boltinn

Setti athyglisverða mynd á instagram eftir sigurinn í FA-bikarnum

Dagur Lárusson skrifar
Willian með bikarinn.
Willian með bikarinn. vísir/getty
Willian, leikmaður Chelsea, setti athyglisverða mynd á instagram síðu sína eftir sigurinn í FA-bikarinum í gær.

 

Willian byrjaði sjálfur á bekknum í gær á meðan Giroud og Hazard leiddu sóknarlínu Chelsea í leiknum. Eftir leikinn fögnuðu liðsmenn Chelsea vel og auðvitað var tekið fullt af myndum.

 

Eina af þessum myndum notaði Willian á instagram síðu sinni eftir leikinn. Myndin sjálf var ekki það sem fangaði athygli fólk heldur það sem Willian bætti við á myndina. Hann setti inn svokallaða „emoji“ af bikar á nokkrum stöðum á myndina og þar á meðal þrjá bikara yfir Antonio Conte, stjóra liðsins.

 

Það hafa verið sögusagnir í gangi í einhvern tíma að samband Willian og Conte sé ekki gott og hafa þær sögusagnir byrjað á ný eftir þetta frá Willian.

 

Mikið af stuðningsmönnum Chelsea hafa skrifað athugasemdir undir myndina og vilja sumir meina að þetta sé einfaldlega óheppileg tilviljun en dæmi hver fyrir sig.

 

Myndina má sjá hér að neðan.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×