Viðskipti innlent

Þetta eru hóparnir í Startup Reykjavík 2018

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní næstkomandi.
Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní næstkomandi. Icelandic Startups
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík fer nú af stað í sjöunda sinn í samstarfi Arion banka og Icelandic Startup. 

Hraðallinn hefur fest sig í sessi sem eftirsóttur vettvangur fyrir sprotafyrirtæki sem vilja þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og hraða vexti undir leiðsögn sérfræðinga. Lögð er áhersla á að ná til öflugra teyma með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greinda, ætlaðar alþjóðamarkaði.

Umsóknum í hraðalinn fjölgaði um 45% frá síðasta ári, en alls bárust 270 umsóknir í ár.

Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní næstkomandi. Þau eru afar fjölbreytt og komin vel af stað, flest eru nú þegar farin að afla tekna. Þrjú þeirra koma erlendis frá: Bretlandi, Svíþjóð og Spáni.

Hóparnir sem taka þátt og hugmyndirnar að baki fyrirækjunum eru eftirfarandi:

Anymaker

Stafrænt stúdíó sem framleiðir þrívíddarhugbúnað ætlaðan börnum.

Blockcycle

Kerfi sem nýtir Blockchain tæknina til að rekja feril umbúða frá afurð til endastöðvar.

Ekki banka

Einföld og snjöll þjónusta, sem hjálpar fólki að gera meira úr peningunum sínum.

Huginn.care

Skýjalausn, fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem ætlað er að einfalda atvika- og dagbókaskráningar skjólstæðinga í umönnun.

Koride

Deilibílalausn fyrir ævintýragjarna ferðamenn á Íslandi.

Leiguskjól

Fjártæknifyrirtæki sem býr til nýjar lausnir fyrir leigumarkað.

Melius

Hannar og framleiðir vélbúnað sem gerir snjallsímum kleift að fylgja því sjálfvirkt eftir sem tekið er upp á símanum.

Sea Data Center

Tæknilausn sem byggir á einstökum gagnagrunni og ætlað er að auka virði viðskipta meðal fyrirtækja í sjávarútvegi.

Taktikal

Hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum með sjálfvirknivæðingu á ýmsum viðskiptaferlum.

Unify Me

Tæknilausn sem gerir fyrirtækjum kleift að eiga öll innri samskipti á einum stað.

Teymin tíu munu njóta ráðgjafar og leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annara sérfræðinga yfir tíu vikna tímabil í þeim tilgangi að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar, koma vöru á markað og hraða vexti. Arion banki fjárfestir jafnframt 2,4 m.kr. í hverju fyrirtæki gegn 6% eignahlut í gegnum dótturfélagið Startup Reykjavik Invest ehf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×