Fótbolti

Benitez: Þetta Liverpool lið betra en 2005 liðið

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Steven Gerrard lyftir bikarnum árið 2005
Steven Gerrard lyftir bikarnum árið 2005 vísir/epa
Rafael Benitez leiddi Liverpool til sigurs í Meistaradeild Evrópu árið 2005 í hinum fræga leik gegn AC Milan í Istanbúl. Jurgen Klopp gæti orðið fyrsti maðurinn til að leika það eftir þegar hann mætir með Liverpool til Kænugarðs og spilar við Real Madrid.

Benitez er enn í miklum metum hjá mörgum stuðningsmönnum liðsins og hann segir þetta lið sem Jurgen Klopp er með í höndunum vera betra en það sem hann stýrði fyrir þrettán árum.

„Þetta lið er betra að mínu mati. Við náðum okkar árangri og það er talað um kraftaverkið í Istanbúl, en þetta lið er betra,“ sagði Benitez við ESPN.

„Við vorum auðvitað með Stevie [Steven Gerrard] og leikmenn með reynslu og gæði á borð við Xabi Alonso og Didi Hamann. Við vorum með lið sem lagði mikið á sig og vorum í góðu jafnvægi.“

„Þetta lið er líka í góðu jafnvægi en leikmennirnir þrír í framlínunni geta breytt leikjum upp á sitt einsdæmi. Við höfðum einn svoleiðis leikmann, þeir hafa þrjá,“ sagð Benitez og átti þá við þá Mohamed Salah, Roberto Firmino og Sadio Mane.

Liverpool mætir liði sem hefur unnið Meistaradeildina síðustu tvö ár og er að fara í fjórða úrslitaleikinn á fimm árum.

„Real Madrid hefur reynsluna og gæðin til þess að mæta þeim en Liverpool getur unnið. Þeir eru með ástríðuna og löngunina,“ sagði Rafael Benitez.

Leikur Real Madrid og Liverpool fer fram á laugardagskvöld og er í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Blaðamenn, ekki spyrja Klopp um Meistaradeildarsigur Liverpool frá 2005

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, stýrir liðinu í kvöld í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Hann mætti á blaðamannafund í gær þar sem hann var ekki hrifinn af því að fjölmiðlamenn væru að spyrja hann um síðasta sigur Liverpool í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×