Enski boltinn

Salah þurfti að „gúgla“ van Dijk

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Salah og van Dijk fagna saman
Salah og van Dijk fagna saman vísir/getty
Mohamed Salah vissi ekki hver Virgil van Dijk var þegar Liverpool keypti hann í janúar og þurfti að „gúgla,“ hann til þess að komast að því hversu gamall Hollendingurinn var.

Salah og Dejan Lovren sátu saman í skemmtilegu spjalli á YouTube síðu Liverpool og ræddu vinskap sinn ásamt mörgu öðru. Meðal þess sem kom upp var van Dijk.

„Ég bjóst við því að hann væri svona 35 eða 36 ára,“ sagði Salah. „En hann er frábær leikmaður og frábær maður. Hefur reyndar aldrei borgað þegar við förum út að borða, en það er í lagi.“

Lovren spurði Salah afhverju hann brosir ekki þegar hann fagnar. „Finnst þér ekki gaman að skora þrennur?“

„Nei, það er eðlilegt,“ sagði Salah léttur í bragði. „Nei, ég get ekki sagt það, það er of hrokafullt,“ bætti hann við og hló.

Þetta skemmtilega spjall má sjá hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×