Íslenski boltinn

Stjarnan mætir Íslandsmeisturunum │Öskubuskuævintýri fyrir austan?

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Katrín Ásbjörnsdóttir og stöllur hennar fara norður
Katrín Ásbjörnsdóttir og stöllur hennar fara norður Vísir/Eyjólfur Garðarsson
Dregið var til 16-liða úrslita í Mjólkurbikar kvenna í Laugardalnum í dag. Liðin tíu í Pepsi deild kvenna koma inn í keppnina á þessu stigi.

Stjarnan fer til Akureyrar og mætir Íslandsmeisturum Þór/KA í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Bikarmeistarar ÍBV sækja Keflavík heim og 2. deildar lið Fjarðarbyggð/Hattar/Leiknis fær Pepsi deildar lið Grindavíkur austur.

Breiðablik mætir KR en liðin mætast einnig í deildinni nokkrum dögum fyrr. Nýliðar í Pepsi deildinni HK/Víkingur mætir Fylki sem féll úr deild þeirra bestu í fyrra. Þá er Pepsi deildar slagur Vals og FH einnig á dagskrá. 

Leikir 16-liða úrslitanna fara fram helgina 1. - 3. júní. 




Fleiri fréttir

Sjá meira
×