Innlent

„Samgönguás“ varð að „Borgarlínu“ á síðasta fundi bæjarstjórnar

Birgir Olgeirsson skrifar
Það var ýmislegt gert á síðasta fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
Það var ýmislegt gert á síðasta fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Vísir/Daníel
Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í kvöld að fresta afgreiðslu á deiliskipulagi sem varðar framkvæmdir á Ásvallabraut. Einnig var samþykkt að breyta orðinu „Samgönguás“ í aðalskipulagsbreytingu á „Fimm mínútna hverfinu“ í Hafnarfirði í „Borgarlína“.

Um var að ræða síðasta fund bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardag.

Sjá einnig: „Andlit“ Hafnarfjarðar verði fimm mínútna hverfið

Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð mynduðu meirihluta í Hafnarfirði í upphafi kjörtímabilsins en það voru fulltrúar minnihlutans, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, sem lögðu fram þá tillögu í kvöld að breyta orðalagi í breytingu á aðalskipulaginu sem varðar fimm mínútna hverfið.

Þrír fulltrúar Samfylkingarinnar, einn fulltrúi Vinstri grænna og fulltrúi Bjartrar framtíðar greiddu atkvæði með þessari tillögu en þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.

Rósa Guðbjartsdóttir og Kristinn Andersen úr Sjálfstæðisflokki greiddu atkvæði gegn tillögunni ásamt forseta bæjarstjórnarinnar Guðlaugu Svölu Steinunnar Kristjánsdóttur. Guðlaug var kjörin í bæjarstjórn fyrir hönd Bjartrar framtíðar en býður sig fram núna undir merkjum Bæjarmálalistans.

Einar Birkir Einarsson var einnig kjörin í bæjarstjórn Hafnarfjarðar undir merkjum Bjartrar framtíðar í síðustu kosningum. Hann sagði sig úr Bjartri framtíð í apríl síðastliðnum en hélt sæti sínu í bæjarstjórn sem óháður bæjarfulltrúi. Fyrir fundinn í kvöld tilkynnti hann um fjarveru sínu því hann hefði glatað kjörgengi sínu í Hafnarfjarðarbæ eftir að Þjóðskrá Íslands hafði úrskurðað lögheimili hans í Kópavogi en ekki Hafnarfirði.

Sjá einnig: Iðnaðarsvæði breytist í 2.300 íbúða hverfi

Varabæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar, Borghildur Sturludóttir, tók sæti hans í bæjarstjórn í kvöld en hún greiddi atkvæði með þessari tillögu um breytingu á orðalaginu „Samgönguás“ yfir í „Borgarlínu“.

„Fimm mínútna hverfið“ er í rauninni vesturhluti Hraunahverfisins í Hafnarfirði en hugmyndin er sú að breyta hverfinu úr þjónustuhverfi í blandaða byggð þar sem íbúar geta fengið flesta þjónustu í fimm mínútna göngufjarlægð frá miðju hverfisins.

Á fundi bæjarstjórnar í kvöld átti að ljúka afgreiðslu á deiliskipulagsbreytingu sem varðar svokallaða Ásvallabraut. Málið varðar nýtt hverfi sem er að byggjast upp í Skarðshlíð við Vellina en íbúar í Áslandi í Hafnarfirði hafa lýst yfir óánægju sinni vegna fyrirhugaðrar Ásvallarbrautar sem er ætluð þessu nýja hverfi.

Var ákveðið að fresta málinu þar sem bæjarstjórn þótti ekki hafa umboð til að afgreiða deiliskipulagsbreytinguna svo skömmu fyrir kosningar og binda þannig hendur næstu bæjarstjórnar í umdeildu máli.


Tengdar fréttir

Sex flokkar næðu inn fulltrúum í Hafnarfirði

Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin í Hafnarfirði halda fylgi sínu að mestu, samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is hafa gert. Annar flokkanna gæti misst fulltrúa.

Ágreiningur um nýtt knatthús í Hafnarfirði

Pétur Óskarsson, varabæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði, gagnrýnir harðlega að honum hafi ásamt Borghildi Sturludóttur, sem einnig er varabæjarfulltrúi BF, verið vikið úr nefndum og ráðum í bæjarstjórninni vegna ágreinings við meirihlutann eða Sjálfstæðisflokk og tvo bæjarfulltrúa um byggingu á knatthúsi í bænum.

Ráku menn BF úr öllum ráðum

Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkti í gær á hitafundi að víkja Borghildi Sturludóttur og Pétri Óskarssyni úr nefndum og ráðum sem þau hafa setið í fyrir hönd Bjartrar framtíðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×