Fótbolti

21 dagur í HM: Kraftaverkið í Bern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vestur-Þjóðverjar fagna hér eftir ótrúlegan úrslitaleik.
Vestur-Þjóðverjar fagna hér eftir ótrúlegan úrslitaleik. vísir/getty
Merkilegt nokk þá er ofurþrenna Jóa Berg gegn Sviss ekki það merkilegasta sem hefur gerst á fótboltavelli í Bern. Í borginni fór nefnilega fram ótrúlegur úrslitaleikur á HM árið 1954.

Þá mætti stórkostlegt lið Ungverja liði Vestur-Þjóðverja en ungverska liðið hafði ekki tapað landsleik er kom að úrslitaleiknum.

Þessi lið mættust einnig í riðlakeppni mótsins og þá unnu Ungverjar ótrúlega öruggan sigur, 8-3. Það átti því enginn von á öðru en að Ungverjar myndu valta aftur yfir Þjóðverjana.

Eftir átta mínútna leik benti fátt til annars en að Ungverjar myndu rúlla þessum leik. Goðsögnin Ferenc Puskas kom þeim yfir á 6. mínútu og Zoltan Czibor bætti öðru marki við tveimur mínútum síðar.

Þjóðverjar hafa aldrei verið þekktir fyrir að gefast upp og aðeins tíu mínútum síðar voru þeir búnir að jafna í 2-2. Fjögur mörk á fyrstu 18 mínútum leiksins. Þvílíkur úrslitaleikur.

Síðari hálfleikur var eign Ungverja sem óðu í færum en tókst ekki að skora. Það var svo Helmut Rahn sem skoraði sigurmark Þjóðverja sex mínútum fyrir leikslok með glæsilegi langskoti og tryggði Þjóðverjum sinn fyrsta heimsmeistaratitil.

Það var mikil dramatík í lok leiksins því Ungverjar skoruðu mark tveimur mínútum fyrir leikslok en það var dæmt af vegna rangstöðu. Þá höfðu dómari og línuvörður rætt málið í rúma mínútu. Ungverjar sturluðust og vildu meina að það hefði verið svindlað á þeim.

Ungverjar sökuðu Þjóðverja líka um lyfjasvindl en þeir þóttu óeðlilega sprækir í síðari hálfleik. Því neituðu Þjóðverjar en í heimildarmynd árið 2004 greindi þýskur sagnfræðingur frá því að Þjóðverjar hefðu fengið sprautur með C-vítamíni í hálfleik. Þær voru af sovéskum uppruna. Samkvæmt rannsókn sem fór fram upp úr aldamótum er sagt að Þjóðverjar hafi líka fengið örvandi efni með vítamíninu.

Þetta heimsmeistaramót var annars stórmerkilegt fyrir margra hluta sakir. Þetta var fyrsta HM sem var sýnt í sjónvarpi.

Varnarleikur var heldur ekki í fyrirrúmi á mótinu enda sáust ótrúlegar tölur í leikjum mótsins. Mest var skorað í leik Sviss og Austurríkis eða tólf mörk. Það er HM-met. Leikurinn fór 7-5 fyrir Austurríki eftir að Sviss hafði komist í 3-0.

Stærsti sigur HM kom líka á þessu móti er Ungverjar pökkuðu Suður-Kóreu saman, 9-0. Í heildina voru skoruð 5,38 mörk að meðaltali í leik á þessu móti og það markamet stendur enn og mun líklega seint falla.

Ungverjar skoruðu 27 mörk á mótinu eða 5,4 mörk að meðaltali í leik. Það er sturluð tölfræði.

Það var ekki eitt 0-0 jafntefli í öllu mótinu og aðeins tvö jafntefli í heildina. Á þessum tíma var boðið upp á framlengingu í leikjum í riðlakeppninni. Engin var þó þó vítakeppnin. Jafntefli kom því ekki fyrr en eftir 120 mínútna leik.

60 þúsund manns troðfylltu völlinn.vísir/getty

Tengdar fréttir

28 dagar í HM: Rauðu spjöldin eltu Song frændurna

Rigobert Song er einn af dáðustu fótboltamönnum í sögu Kamerún. Hann var fyrirliði landsliðsins og þjálfaði í heimalandinu. Hann á samt nokkur óskemmtileg met tengd heimsmeistarakeppninni í fótbolta og ásamt frænda sínum er einn af mestu skúrkum keppninnar.

27 dagar í HM: Markið sem ekki VAR og Englendingar gráta enn

Eitt helsta deilumál fótboltaheimsins síðasta árið hefur verið myndbandsdómgæsla og notkun hennar. Ráðamenn fótboltans eru ekki sammála í þessum efnum. Aleksander Ceferin, forseti UEFA, vill ekki sjá myndbandsdómara í Meistaradeildinni á meðan Gianni Infantino, forseti FIFA, styður notkun þeirra og verður myndbandsdómgæsla notuð á HM í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×