Enski boltinn

Viðræður United og umboðsmanna Fred komnar vel á veg

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Fred er afar sprækur.
Fred er afar sprækur. vísir/getty
Brasilíski mðijumaðurinn Fred staðfesti vð ESPN að viðræður umboðsmanna hans og forráðamanna United væru komnar langt á leið.

Hinn 25 ára Fred er á mála hjá Shakhtar Donetsk og er öll einbeiting hans á HM í Rússlandi þessa dagana.

„Umræðurnar hafa verið komnar langt á veg síðan í janúar held ég,“ sagði Fred við bandarísku fréttastofuna.

„Það var möguleiki á skiptum til City í janúar en stuttu eftir það áttu bæði City og United samtöl við Shakhtar og umboðsmanninn minn um félagsskipti. Ef mér skjátlast ekki þá kom mjög gott tilboð frá United en ég er með hugann við HM. Umboðsmennirnir mínir sjá um þetta.“

Pep Guardiola, stjóri City, mun hafa misst áhugan á Fred en hann er efstur á óskalista Jose Mourinho og vonast United eftir því að ganga frá skiptunum fyrir heimsmeistaramótið sem hefst eftir 20 daga.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×