Fótbolti

Gunnhildur Yrsa og félagar töpuðu fyrir Portland Thorns

Einar Sigurvinsson skrifar
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir. Vísir/Getty
Portland Thorns vann 2-0 sigur á Utah Royals FC í bandarísku NWSL-deildinni í knattspyrnu í gær. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn í liði Utah Royals.

Fyrsta mark leiksins skoraði Tiyi Shipalane á 18. mínútu. Skömmu fyrir hálfleik bætti Lindsey Horan við öðru marki Portland Thorns og var staðan 2-0 í hálfleik.

Ekkert mark var skorað í síðari hálfleiknum og fóru því öll stigin þrjú til Portland.

Þetta var fyrsta tap Utah Royals síðan 14. apríl en liðið situr í 6. sæti deildarinnar með 11 stig eftir níu leiki. Portland Thorns er í 2. sæti með 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×