Enski boltinn

Karius bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Karius liggur á vellinum eftir lokaflautið.
Karius liggur á vellinum eftir lokaflautið. vísir/getty
Loris Karius átti slæman dag er Liverpool tapaði 3-1 fyrir Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en Karius gerði slæm mistök í tveimur mörkum Real.

Karius kastaði boltanum í Benzema og inn í fyrsta markinu og í þriðja markinu missti hann skot Gareth Bale í netið lengst utan af velli.

Eftir leikinn labbaði Karius að stuðningsmönnum Liverpool, beindi höndum sínum að sér og baðst einfaldlega afsökunar. Athygli vakti að fleiri leikmenn Real voru lengstum umkringdir Karius heldur en leikmenn Liverpool.

Myndir af þesu hér fyrir neðan en Karius var með tár í augunum enda átti hann slæman dag á mögulega einu af stærsta sviði fótboltans.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×