Lífið

Kosninganóttin í borginni gerð upp í myndum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Heiða Björg Hilmarsdóttir tók vel á móti Degi B. Eggertssyni í Austurbæ þegar fyrstu tölur lágu fyrir, sem voru ekki í takt við vonir Samfylkingarinnar.
Heiða Björg Hilmarsdóttir tók vel á móti Degi B. Eggertssyni í Austurbæ þegar fyrstu tölur lágu fyrir, sem voru ekki í takt við vonir Samfylkingarinnar. Vísir/Rakel Ósk
Dramatíkin var mikil í Reykjavík í nótt þegar sextán framboð gerðu tilraun til að setja svip sinn á borgarstjórn Reykjavíkur næstu fjögur árin. Átta flokkar náðu fulltrúa í borginni og voru úrslit spennandi fram á sjöunda tímann í morgun þegar úrslitin lágu fyrir.

Oddvitar flokkanna voru á ferð og flugi í nótt þar sem þeir brugðust við nýjum tölum í sjónvarpssal og fögnuðu eða hughreystu sitt fólk. 

Rakel Ósk Sigurðardóttir og Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndarar Vísis, voru á ferðinni í nótt og tóku myndirnar að neðan.

Neðst í fréttinni má sjá myndaalbúm frá kosninganótt.



Hildur Björnsdóttir og Eyþór Arnalds fögnuðu fyrstu tölum vel. Um tíma var Sjálfstæðisflokkurinn með níu menn inni en lauk keppni stærstur flokka í borginni með átta fulltrúa.Vísir/Vilhelm
Dagur segir ekki koma til greina að vinna með Sjálfstæðisflokknum. Vel fór þó á með oddvitunum í sófaspjalli í Efstaleiti.Vísir/Vilhelm
Dóra Björt Guðjónsdóttir Pírati var fullviss um að flokkurinn næði tveimur fulltrúum í borginni, og gat fagnað því í morgun.Vísir/Vilhelm
Viðreisn er í lykilstöðu í borginni en flokkurinn náði tveimur borgarfulltrúum inn. Flokkurinn gefur ekkert uppi hvort honum hugnist heldur samstarf til hægri eða vinstri.Vísir/Rakel Ósk
Gestkvæmt var í sjónvarpssal hjá fréttastofu Stöðvar 2.Vísir/Vilhelm
Eyþór og Sanna voru mætt í morgunsárið á Sprengisand á Stöð 2 eftir lítinn nætursvefn. Sanna útilokar samstarf Sósíalistaflokksins við Sjálfstæðisflokkinn.Vísir/Kolbeinn Tumi
Meirihlutinn í borginni er fallinn og óvíst hvort Dagur og Líf verði í meirihluta eða minnihluta næstu fjögur árin. Hér rýna þau í stöðuna.Vísir/Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×