Viðskipti innlent

Brim gerir hluthöfum HB Granda kauptilboð

Samúel Karl Ólason skrifar
HB Grandi er eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins.
HB Grandi er eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins. Vísir/HANNA
Útgerðarfyrirtækið Brim hefur gert hluthöfum HB Granda tilboð um að kaupa alla hluti fyrirtækisins. Brim keypti í byrjun mánaðarins alls 34 prósent hlutafjár HB Granda á tæplega 21,7 milljarða króna. Hlutaféð var keypt af Vogun hf. og Fiskveiðihlutafélaginu Venus hf. Með viðskiptunum voru Kristján Loftsson og fjölskylda að selja nær allan hlut sinn í HB Granda.

Þau kaup gerðu það að verkum samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti að Brim sé skylt að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka, sem hefur verið ráðinn umsjónaraðili með yfirtökutilboðinu.

Þar kemur einnig fram að forsvarsmenn Brim hafi ekki uppi áætlanir um að afskrá HB Granda af verðbréfamarkaði. Enn fremur segir að stórir hluthafar hafi þegar tilkynnt að þeir muni ekki taka yfirtökutilboðinu og þeir ætli að vera áfram hluthafar.

„Verð samkvæmt yfirtökutilboðinu er 34,3 krónur fyrir hvern hlut í HB Granda, kvaða- og veðbandslausan. Tilboðsverðið svarar til kr. 35 á hlut fyrir arðgreiðslu upp á 0,7 krónur á hlut sem svarar til hæsta verðs sem Brim og samstarfsaðilar hafa greitt fyrir hluti í HB Granda síðustu sex mánuði áður en tilboð þetta er sett fram,“ segir í tilkynningunni.

 


Tengdar fréttir

Vilja ekki missa einu útgerðina af markaði

Veruleg samlegðaráhrif skapast með kaupum Brims á þriðjungshlut í HB Granda. Ólíklegt þykir að lífeyrissjóðir í hópi stærstu hluthafa HB Granda muni taka yfirtökutilboði Brims. Hópur hluthafa telur aðkomu Hvals að HB Granda hafa skaðað sjávarútvegsfyrirtækið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×